Forstjóri MS: Fyrirtækið misnotaði ekki markaðsráðandi stöðu

Ari Edwald
Auglýsing

MS lýsir ánægju sinni yfir því að áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála hafi fellt úr gildi ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins frá 7. júlí, en sekt­ar­greiðsla upp á 440 millj­ónir var felld niður og eftir stendur 40 millj­óna króna stjórn­valds­sekt, eins og greint var frá í frétt frá því fyrr í dag.

Í til­kynn­ingu frá Ara Edwald, for­stjóra MS, fagnar hann því sér­stak­lega að áfrýj­un­ar­nefndin hafi farið vel ofan í álita­mál­in, sem um ræð­ir. Það hafi leitt til þess að sam­starf MS við önnur fyr­ir­tæki hafi verið í sam­ræmi við lög.

Hann segir að nið­ur­staðan sýni að lagaum­hverfið sé til þess fallið að verja hags­muni neyt­enda og stuðla að hag­ræð­ingu. „Þá er það sér­stakt ánægju­efni að nefndin skuli hafa stað­fest að sam­starf MS við tengda aðila hafi verið að fullu í sam­ræmi við lög og að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi ekki gefið sam­spili sam­keppn­islaga og búvöru­laga nægi­legan gaum í rann­sókn sinni.

Auglýsing

Sam­kvæmt lögum er hluti af starf­semi mjólkur­iðn­að­ar­ins und­an­þeg­inn afmörk­uðum ákvæðum sam­keppn­islaga. Mark­mið þessa er að lækka kostnað við fram­leiðslu mjólk­ur­af­urða, til ábata fyrir neyt­end­ur. Skipu­lag starf­semi MS og tengdra aðila hefur grund­vall­ast á þessu.

Sú heim­ild til sam­starfs sem aðilar í mjólkur­iðn­aði hafa á grund­velli búvöru­laga, hefur skilað sér í veru­legri hag­ræð­ingu og þar af leið­andi umtals­vert lægra vöru­verði til neyt­enda. Þetta fyr­ir­komu­lag hefur skilað sér í tölu­vert lægra verði á mjólk­ur­vörum til neyt­enda sam­kvæmt óháðum úttektum aðila á borð við hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands.

Varð­andi stað­fest­ingu á úrskurði Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um að MS hafi láðst að leggja fram til­tekið gagn þá skal það tekið fram að MS hafði engan hag af því, heldur þvert á móti, enda studdi það mál­stað MS. Þá skal það áréttað að MS veitti ekki á nokkru stigi rangar upp­lýs­ingar heldur láð­ist að leggja fram til­tek­inn samn­ing, sem margoft var þó vísað til á fyrri stigum máls­ins.

Það eru hags­munir kúa­bænda, eig­enda MS, að sem flestir aðilar starfi að nýsköpun í grein­inni, að vöru­fram­boð sé fjöl­breytt og smærri fyr­ir­tæki skili árangri í nýt­ingu mjólk­ur­af­urða. Það er von MS að hið góða sam­starf við bændur og aðra fram­leið­end­ur, eflist með tíð og tíma og skili sér áfram í nýsköpun í iðn­að­inum og fjöl­breyttu vöru­úr­vali til neyt­enda,“ segir Ari Edwald, for­stjóri MS.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None