Sekt lækkuð og búvörulög sögð æðri samkeppnislögum

neysluvorur_15348676689_o.jpg
Auglýsing

Áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála kvað í dag upp úrskurð vegna ákvörð­unar Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins frá 7. júlí síð­ast­liðn­um, en þá var MS sektað um 480 millj­ónir króna vegna mis­notk­unar fyr­ir­tæk­is­ins á mark­aðs­ráð­andi stöð­u. 

Áfrýj­un­ar­nefndin breytir nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins í úrskurði sínum og lækkar sekt vegna máls­ins í 40 millj­ón­ir. Meiri­hluti áfrýj­un­ar­nefnd­ar­inn­ar, það er tveir nefnd­ar­menn af þrem­ur, taka síðan undir þau sjón­ar­mið MS að búvöru­lögin séðu æðri sam­keppn­is­lög­um, og fella því þau sjón­ar­mið Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins úr gildi í mál­inu.

Með ákvörðun sinni 7. júlí komst eft­ir­litið að þeirri nið­ur­stöðu að MS hefði mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína með alvar­legum hætti með því að selja keppi­nautum sínum grund­vall­ar­hrá­efni til fram­leiðslu á mjólk­ur­vörum á óeðli­lega háu verði á sama tíma og MS sjálft og tengdir aðilar fengu þetta hrá­efni á mun lægra verði, og að auki undir kostn­að­ar­verð­i. 

Auglýsing

Var þetta til þess fallið að veita MS og tengdum aðilum veru­legt sam­keppn­is­for­skot og geta keppi­nauta til þess að keppa við MS og tengd félög skert með alvar­legum hætti, að mati Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Taldi Sam­keppn­is­eft­ir­litið að hátt­semin væri til þess fallin að skaða á end­anum hags­muni  bæði neyt­enda og bænda. „Þá lá fyrir að MS veitti Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu rangar upp­lýs­ingar og lét undir höfuð leggj­ast að upp­lýsa eft­ir­litið um mik­il­væg gögn,“ segir í til­kynn­ingu frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu.

Áfrýj­un­ar­nefndi er sam­mála Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu um að Mjólk­ur­sam­salan hafi „með alvar­legum hætti“ brotið sam­keppn­is­lög með því að halda mik­il­vægum upp­lýs­ingum frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu við rann­sókn máls­ins. Hafi félagið tor­veldað rann­sókn­ina með því hátta­lagi. Stað­festi nefndin þá stjórn­valds­sekt sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið lagði á MS vegna þessa, segir í til­kynn­ingu, og er 40 millj­óna sektin ein­göngu vegna þessa.

„Í úrskurði sínu klofn­aði áfrýj­un­ar­nefndin hins vegar í afstöðu sinni til þess hvort um mis­notkun á mark­aðs­ráð­andi stöðu hefði verið að ræða. Þannig byggir meiri­hluti nefnd­ar­innar (tveir nefnd­ar­menn) á því að ákvæði búvöru­laga, sem heim­ilar mjólk­ur­af­urða­stöðvum sam­starf sem ella væri ólög­mætt sam­kvæmt sam­keppn­is­lög­um, hafi í raun heim­ilað MS að selja hrá­mjólk á lægra verði til tengdra aðila heldur en til sjálf­stæðra afurða­stöðva. Á þessum for­sendum fellir meiri­hlut­inn ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins út gildi að þessu leyt­i. Minni­hluti nefnd­ar­innar (for­maður nefnd­ar­inn­ar) lýsti sig hins vegar sam­mála þeirri nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins að MS „hafi brotið alvar­lega gegn 11. gr. sam­keppn­islaga. Einnig tel ég að sú sekt sem ákveðin var í hinni kærðu ákvörðun sé rétt ákveð­in““ segir í til­kynn­ingu frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu vegna máls­ins.

Nefndin tekur ekki undir gagn­rýni MS á máls­með­ferð og rann­sókn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins.

Í til­kynn­ingu frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu seg­ir, að það muni nú fara yfir úrskurð­inn og taka afstöðu til þess hvort rétt sé að bera hann undir dóm­stóla.

Í áfrýj­un­ar­nefnd­inni eru Jóhannes Karl Sveins­son, hæsta­rétt­ar­lög­mað­ur, for­mað­ur. Anna Kristín Trausta­dóttir, lög­giltur end­ur­skoð­andi og Stefán Már Stef­áns­son, pró­fessor í lögum við Háskóla Íslands.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None