Katrín segir áherslur VG í skattamálum ekki eiga að koma neinum á óvart

Katrín Jakobsdóttir
Auglýsing

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs, segir að áherslur VG í skatta­málum eigi ekki að koma neinum á óvart. 

„Við lof­um nefni­lega ekki auknum útgjöldum í heil­brigð­is­þjón­ustu og skóla­málum (sem allir segj­ast vilja) nema við teljum að við getum aflað tekna á móti og að þeirra tekna sé aflað með rétt­látum hætti. Að sjálf­sögðu er þetta vinstrisinnuð stefna en það er nú ekki hægt að saka okkur um að hafa siglt undir fölsku flaggi í þeim efn­um,“ segir Katrín í færslu á Face­book-­síðu sinni í dag. 

Katrín segir að ein­hverjir séu nú að „missa sig vegna umræðna um skatta­mál.“ Fjallað var um það bæði í Frétta­blað­inu og Morg­un­blað­inu í morgun að mis­mun­andi skatta­stefnur séu eitt helsta ágrein­ings­málið í við­ræðum flokk­anna fimm sem nú eiga í form­legum stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­u­m. 

Auglýsing

„Því er rétt að benda á að Vinstri græn hafa lagt þunga áherslu á það að farið verði í kerf­is­breyt­ingar sem miða að því að auka jöfnuð og draga úr mis­skipt­ingu í sam­fé­lag­inu. Í því felst að sótt verði fram í heil­brigð­is-, mennta- og vel­ferð­ar­málum sam­hliða umbótum í skatta­málum sem ann­ars vegar miða að því að fjár­magna þessa sókn og hins vegar að því að velta skatt­byrði af lág- og milli­tekju­hópum yfir á hátekju­hópa,“ skrifar Katrín. 

Hún segir að til þess að hægt verði að ráð­ast í nauð­syn­legar aðgerðir í heil­brigð­is- og mennta­málum og leið­rétta kjör aldr­aðra og öryrkja, þurfi rík­is­stjóður auknar tekj­ur. „Þessar tekjur viljum við tryggja með því að taka á skattsvikum sem var­lega eru áætluð um 80 millj­arðar á ári, með því að tryggja auknar tekjur af nýt­ingu sam­eig­in­legra auð­linda þjóð­ar­innar og kanna mögu­leika á því að skatt­leggja fjár­magnið sem þar er að finna. Þetta þýðir kerf­is­breyt­ingar í skatta­málum sem færa skatt­byrði af lág- og milli­tekju­hópum yfir á hátekju­hópa. Þannig aukum við jöfnuð og tryggjum að allir njóti þeirrar upp­sveiflu sem er í efna­hags­líf­in­u.“ 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None