Steinþór Pálsson ætlar ekki að segja af sér

Steinþór Pálsson
Auglýsing

Stein­þór Páls­son, banka­stjóri Lands­bank­ans, segir að það hafi verið til hags­bóta fyrir bank­ann að selja ákveðnar eignir hans í lok­uðu sölu­ferli og að reglum bank­ans hafi verið fylgt við sölu þeirra. Hann ætlar ekki að segja af sér. Þetta kemur fram á RÚV.

Rík­­is­end­­ur­­skoðun birti á mánu­dag skýrslu um eigna­sölu Lands­bank­ann, sem er í eigu íslenska rík­is­ins, á árunum 2010 til 2016. Þar gerði stofn­unin fjöl­margar athuga­­semdir við það hvernig Lands­­bank­inn hefur staðið að sölu á fjöl­­mörgum eignum sínum á tíma­bil­inu, einna helst Vestia, Icelandic Group, Promens, Fram­taks­­sjóði Íslands, IEI, Borgun og Valitor. „Allar þessar sölur fóru fram í lok­uðu ferli og í sumum til­­vikum fékkst lík­­­lega lægra verð fyrir eign­­ar­hlut­ina en vænta mátti miðað við verð­­mætin sem þeir geymd­u,“ segir Rík­­is­end­­ur­­skoðun í nýrri skýrslu sinn­i. 

Með þessu hafi Lands­bank­inn stefnt trausti og trú­verð­ug­leika sínum í hættu. Stofn­unin beindi því til banka­ráðs Lands­bank­ans að gripið verði til ráð­staf­ana til að end­ur­reisa orð­spor Lands­bank­ans. Stein­þór seg­ist fagna skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar en að hún hefði mátt vera ítar­legri. Hann ætlar þó ekki að segja af sér.

Auglýsing

Salan á Borgun sér­stak­lega gagn­rýnd

Vinn­u­brögð bank­ans við söl­una á 31,2 pró­sent hlut í greiðslu­korta­­fyr­ir­tæk­inu Borgun hafa verið harð­­lega gagn­rýnd, enda var hlut­­ur­inn seldur í lok­uðu ferli árið 2014 og vís­bend­ingar voru strax um að það hefði verið gert á lægra verði en eðli­­legt hefði mátt þykja. Rík­­is­end­­ur­­skoðun segir að bank­inn hafi haft nægan tíma til að kynna sér starf­­semi Borg­unar auk þess sem tími hefði verið til að hafa sölu­­ferlið opið. 

Bank­inn hafi auk þess ekki gætt að hugs­an­­legum verð­­mætum sem fylgdu hlutn­um, sem var hlut­­deild í fjár­­munum sem fyr­ir­tækið sékk þegar Visa Inc. tók yfir Visa Europe. Það voru 6,2 millj­­arðar króna. Starfs­­menn Lands­­bank­ans sem komu að söl­unni á Borgun vissu af þessu, og bank­inn vissi frá því í jan­úar 2013 að það voru veru­­leg verð­­mæti fólgin í þessu. Sér­­fræð­ingar bank­ans um greiðslu­korta­við­­skipti upp­­lýstu banka­ráðið á fundi í jan­úar 2013 um mög­u­­legan hagnað Valitors af val­rétt­in­um, en full­­trúar bank­ans segj­­ast ekki hafa vitað að Borgun væri aðili að Visa Europe líka. Þetta gagn­rýnir Rík­­is­end­­ur­­skoðun og segir að aðild Borg­unar að Visa Europe hafi staðið frá árinu 2010 og hafi verið for­­senda þess að fyr­ir­tækið var með færslu­hirð­ingu vegna Visa­korta. 

Rík­­is­end­­ur­­skoðun segir að greiðslu­korta­­sér­­fræð­ingar Lands­­bank­ans hafi ekki átt hlut að máli þegar hlut­­ur­inn í Borgun var seld­­ur, þar sem ekki var leitað til þeirra. Þá hefði bank­inn getað fengið vit­­neskju um þetta ef gerð hefði verið áreið­an­­leika­könnun upp úr gögn­unum sem bank­­anum stóð til boða í gagna­her­bergi. Það hefði að mati Rík­­is­end­­ur­­skoð­unar verið eðli­­legur hluti af sölu­­ferl­in­u. 

Ein þeirra ábend­inga sem Rík­­is­end­­ur­­skoðun beinir til bank­ans er að hann verði að grípa til ráð­staf­ana til að end­­ur­reisa orð­­spor sitt. Trú­verð­ug­­leika bank­ans hafi verið stefnt í hættu með verk­lagi við sölu á verð­­mætum eign­­um.

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um svarta skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar í frétta­skýr­ingu á mánu­dag.





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None