Bjarni vill þriggja flokka stjórn – Katrín vill geyma viðræður fram yfir helgi

Bjarni og Kata
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að hann telji það eðli­legt næsta skref að ræða við Bjarta fram­tíð og Við­reisn á ný. Frekar eigi að vinna með mögu­leik­ann á þriggja flokka stjórn en fimm flokka stjórn eða þjóð­stjórn. Þetta kom fram eftir fund Bjarna með Guðna Th. Jóhann­essyni for­seta Íslands í morg­un. 

Bjarni sagð­ist jafn­framt hafa trú á því að lausn finn­ist á mál­um, og að skýr­ingar væru á því hvers vegna sú staða er komin upp að engar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður eru í gangi eða hafa borið árang­ur. „Menn hafa verið óraun­sæ­ir, koma út úr kosn­inga­bar­átt­unni í miklum eld­móð með sín stefnu­mál efst í huga og velta fyrir sér hvernig megi hrinda þeim í fram­kvæmd, en eru smám saman að átta sig á því að það er kannski ekki það sem skiptir mestu máli til þess að mynda rík­is­stjórn­.“ 

Guðni Th. Jóhann­es­son hafði boðað alla for­menn flokka á sinn fund í dag á skrif­stofu for­seta Íslands við Sól­eyj­ar­götu. Bjarni var fyrstur í röð­inni og svo kom Katrín Jak­obs­dóttir for­maður Vinstri grænna. Næst mætti Bene­dikt Jóhann­es­son for­maður Við­reisn­ar, en hann situr nú á fundi með for­set­an­um.

Auglýsing

Katrín sagði við fjöl­miðla eftir fund sinn við for­set­ann að það væri hennar skoðun að fólk sé orðið svo­lítið þreytt, að minnsta kosti ætti það við um hana sjálfa. „Ég held að það væri ágætt ef við geymdum okkur frek­ari við­ræður fram yfir helg­ina.“ Hún sagði nú mik­il­vægt að þingið geti haf­ist og glímt við þau mál sem þar liggi fyr­ir, og hún sagð­ist ekki hafa áhyggjur af því þó ekki sé búið að mynda rík­is­stjórn. 

Katrín sagð­ist ekki úti­loka fimm flokka rík­is­stjórn­ina sem hún leiddi við­ræður um að reyna að mynda þar til í síð­ustu viku. Hún tók þó fram að flestir flokk­arn­ir, en ekki all­ir, væru búnir að máta sig hver við ann­an. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur ekki tekið þátt í form­legum stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræð­um, og sagði Katrín að hún hefði átt góðan fund með for­ystu Fram­sókn­ar­flokks­ins. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None