Stjórnvöld láta gera úttekt á starfsemi Matvælastofnunar

Gunnar Bragi Sveinsson ráðherra
Auglýsing

Gunnar Bragi Sveins­son, starf­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, ætlar að láta gera úttekt á ýmsum þáttum í rekstri og starfs­um­hverfi Mat­væla­stofn­un­ar. Þeir Bjarni Snæ­björn Jóns­son stjórn­un­ar­ráð­gjafi og Ólafur Odd­geirs­son dýra­læknir og fram­kvæmda­stjóri ráð­gjafa­fyr­ir­tæks­is­ins Food Control Consult­ants Ltd í Skotlandi munu gera úttekt­ina. 

Úttektin er gerð eftir upp­ljóstr­anir um starfs­hætti Brú­neggja og afskipti Mat­væla­stofn­unar af starf­sem­inni þar. Unnið er að end­ur­skoðun laga um Mat­væla­stofnun í ráðu­neyt­inu og gert er ráð fyrir að úttekt á stofn­un­inni liggi fyrir í lok febr­úar og muni verða notuð við end­ur­skoð­un­ina.

Gunnar Bragi segir í frétta­til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu að öllum megi vera ljóst að það sé mik­il­vægt að traust ríki um starf­hætti Mat­væla­stofn­un­ar. „Við höfum fengið mjög hæfa ein­stak­linga til að yfir­fara verk­ferla, laga­legt umhverfi og stjórn­sýslu á sviði dýra­vel­ferðar og mat­væla­eft­ir­lits. Með þessu vil ég stuðla að því að við lærum af þeim mis­tökum sem kunna að hafa verið gerð í ein­stökum málum og tryggjum að laga­leg umgjörð sé í sam­ræmi við almenna hags­mun­i.“

Auglýsing

Þeir Bjarni Snæ­björn og Ólafur munu fara yfir verk­ferla Mat­væla­stofn­unar þegar kemur að eft­ir­liti með lögum um dýra­vel­ferð og mat­væla­eft­ir­lit og greina starfs­að­ferðir og bera saman við það sem almennt ger­ist hjá sam­bæri­legum stofn­unum í Evr­ópu. Sér­fræð­ingar ráðu­neyt­is­ins munu yfir­fara lög sem gilda um starf­semi Mat­væla­stofn­unar og beit­ingu þeirra og greina hvort skortur á laga­úr­ræðum hamli því að stofn­unin geti veitt almenn­ingi og opin­berum stofn­unum upp­lýs­ingar úr eft­ir­lits­skýrsl­u­m. 

Þá verður gerð athugun á rekstri, skipu­lagi og stjórnun og hvernig ráðu­neytið sinnir almennum eft­ir­lits­skyldum sínum með starf­semi Mat­væla­stofn­un­ar. Loks er óskað eftir ábend­ingum um það sem betur má fara varð­andi fram­an­greinda þætti, til­lögum um breyt­ingar á lögum og öðru því sem telja má að geti eflt fram­kvæmd með lögum um dýra­vel­ferð og mat­væla­eft­ir­lit.  

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None