Vinstri græn ætla ekki að samþykkja lífeyrissjóðafrumvarp

Katrín Jakobsdóttir
Auglýsing

Vinstri græn ætla ekki að standa að sam­þykkt frum­varps um breyt­ingu á lögum um Líf­eyr­is­sjóð starfs­manna rík­is­ins (LSR) sem ætlað er jafna líf­eyr­is­rétt­indi í land­inu. Þetta kemur fram í nefnd­ar­á­liti sem Katrín Jak­obs­dótt­ir, ­for­mað­ur­ ­flokks­ins og full­trúi hans í efna­hags- og við­skipta­nefnd, sem fylgir breyt­ing­ar­til­lögu frum­varps­ins. Frum­varpið verður hins vegar afgreitt úr nefnd­inni nær óbreytt með meiri­hluta atkvæða.

Í nið­ur­stöðu álits­ins segir að fyrsti minni­hluti Vinstri grænna taki undir það meg­in­mark­mið að jafna eigi líf­eyr­is­rétt­indi á Íslandi, og að það geti verið heppi­legur tími til að ráð­ast í slíka aðgerð, þá sé óheppi­legt að frum­varpið byggi á sam­komu­lagi sem aðilar túlki með mjög ólíkum hætti. „Í því ljósi er það slæmt að Alþingi sé gef­inn svo skammur tími og raun ber vitni til að taka afstöðu til slíkra grund­vall­ar­breyt­inga á líf­eyr­is­kerfi opin­berra starfs­manna. Ljóst má vera að aðilar eru ósam­mála um túlkun á grund­vall­ar­at­riðum í breyt­ing­unum sem lúta að því hvernig líf­eyr­is­kjör verða tryggð til fram­búðar og hvort þau geti talist jafn­verð­mæt fyrir og eftir breyt­ing­ar. Enn fremur eru greini­lega ríkar efa­semdir um að staðið verði við mark­mið sam­komu­lags­ins um launa­jöfnun milli ólíkra mark­aða. 

Þar sem þetta eru meg­in­at­riði mun Vinstri hreyf­ingin – grænt fram­boð ekki standa að sam­þykkt frum­varps­ins.“

Auglýsing

Þess í stað leggur flokk­ur­inn fram breyt­ing­ar­til­lögu um að ráð­herra skuli við gild­is­töku lag­anna skipa starfs­hóp með full­trúum fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytis og stétt­ar­fé­laga á almennum og opin­berum vinnu­mark­aði sem greini með heild­stæðum hætti þörf á því að lækka líf­eyr­i­s­töku­aldur fyrir til­teknar stétt­ir. 

Vonin brást

Skrifað var undir sam­komu­lag um að jafna líf­eyr­is­rétt­indi launa­fólks í fram­tíð­inni þann 19. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Sam­kvæmt því átti ekki lengur að skipta máli hvort laun­þegi ynni hjá hinu opin­bera eða á almennum mark­aði, áunnin líf­eyr­is­rétt­indi yrðu hin sömu. Hingað til hefur þum­al­putta­reglan verið sú að þeir sem vinna hjá hinu opin­bera hafa fengið lægri laun en þeir sem vinna hjá einka­að­il­um, en betri líf­eyri. Til þess að opin­berir starfs­menn myndu sætta sig við jöfnun líf­eyr­is­rétt­inda þarf því að jafna skekkj­una í laun­um. Það átti að gera innan ára­tugar sam­kvæmt sam­komu­lag­inu, en aðferð­ar­fræðin við það var ekki útfærð nán­ar. Á móti átti að hækka líf­eyr­is­aldur allra opin­berra starfs­manna úr 65 í 67 ár og afnema rík­is­á­byrgð á opin­berum líf­eyr­is­sjóð­u­m. 

Síðar kom í ljós að þeir sem skrif­uðu undir sam­komu­lagið voru ekki á einu máli um hvað það væri. Banda­laga háskóla­manna, BSRB og Kenn­ara­sam­band Íslands gerðu miklar athuga­semdir við þing­lega með­ferð máls­ins undir lok síð­asta kjör­tíma­bils, og hafa end­ur­tekið þær aðfinnslur nú þegar málið hefur verið lagt aftur fram. Í frum­varp­inu seg­ir: „Sam­töl hafa farið fram á milli aðila um mögu­lega lausn og stóðu vonir til þess að sam­eig­in­leg nið­ur­staða feng­ist fyrir lok nóv­em­ber sl. en sú von brást. Þrátt fyrir að ekki hafi náðst nið­ur­staða milli aðila er frum­varpið nú lagt fram að nýju.“

Breyt­ingar gerðar en samt gagn­rýni

Nokkrar breyt­ingar voru gerðar á frum­varp­inu þegar það var lagt aftur fram. Þar mun­aði mestu um að fram­lag rík­is­ins til líf­eyr­is­auka­sjóðs var hækkað í 106,8 millj­arða króna og 10,4 millj­arða króna greiðslu til A-deild­ar LSR til að koma áfall­inni stöðu sjóðs­ins í jafn­vægi. Ástæða þess að mikið liggur á að sam­þykkja frum­varpið fyrir ára­mót er að til stendur að nota stöð­ug­leika­fram­lög, sem bók­færð eru sem tekjur á árinu 2016, til verks­ins.

Í um­sögn­um um frum­varpið hafa ýmsir bent á að það brjóti í bága við ­eign­ar­rétt­ar­á­kvæð­i ­stjórn­ar­skrár­innar þar sem ákveðin hætta sé fyrir hendi að áunnin rétt­indi glat­ist ef til þess kemur að ávöxtun fram­tíðar eða ein­hverjar aðrar trygg­inga­fræði­legar for­sendur bregð­ist. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None