Harpa.20082011_Nic.Lehoux_1.jpg
Auglýsing

Hall­dór Guð­munds­son, sem hefur verið for­stjóri Hörpu frá því í maí 2012, mun láta af störfum 1. mars næst­kom­andi. Hann mun á sama tíma taka við nýrri stöðu erlend­is, en hann hefur verið ráð­inn af orsku bók­mennta­mið­stöð­inni Norla til að stjórna þátt­töku Nor­egs sem verður heið­urs­gestur bóka­sýn­ing­ar­innar í Frank­furt árið 2019. Hall­dór stýrði þátt­töku Íslands á sömu sýn­ingu árið 2011. Starf for­stjóra Hörpu verður aug­lýst á nýju ári.

Í frétt á vef Hörpu er haft eftir Hall­dóri að mikil eft­ir­sjá sé fyrir hann að Hörpu og starfs­fólk­inu sem þar vinni. Það sé hins vegar heiður að vera boðið að ann­ast svo mik­il­vægt bók­mennta­kynn­ing­ar­verk­efni fyrir annað land, og bók­menntir og bóka­út­gáfa séu það svið sem hann hefur helgað mestan hluta starfsævi sinn­ar.

Þungur en batn­andi rekstur

Rekstur Hörpu, sem er í eigu íslenska rík­is­ins og Reykja­vík­ur­borgar hefur verið erf­ið­ur frá því að hann hófst. Sam­an­lagt nemur tap Hörpu, fram­lög ríkis og borgar vegna skulda hennar og rekstr­­­ar­fram­lag ríkis og borgar sléttum átta millj­­­örðum króna frá byrjun árs 2011 og til síð­­­ustu ára­­móta.

Auglýsing

Rekst­­ur­inn hefur þó batnað mikið síð­­­­­ustu ár ef horft er til aukn­ingar á rekstr­­­ar­­­tekj­­­um. Árið 2011 voru þær 482 millj­­­ónir króna en í fyrra voru rekstr­­­ar­­­tekj­­­urnar 1.066 millj­­­ónir króna. Þær meira en tvö­­­­­föld­uð­ust því á fimm árum og hækk­­uðu ár frá ári.

Rekstr­­­ar­­­gjöld hafa að sama skapi vax­ið. Árið 2012 voru þau um 1.229 millj­­­ónir króna. Í fyrra voru þau 1.349 millj­­­ónir króna.

All stefnir í að rekst­ur­inn batni enn frekar í ár, að gestir húss­ins á árinu 2016 verði hátt í tvær millj­ónir og við­burðir sem þar voru haldnir vel á annað þús­und.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None