Vodafone samþykkir kaup á 365 á 6,8 milljarða

365 miðlar
Auglýsing

Fjar­skipti hf., móð­ur­fé­lag Voda­fone á Íslandi, hefur náð sam­komu­lagi um að kaupa ljós­vaka- og fjar­skipta­starf­semi 365 miðla á sam­tals 6,8 millj­arða króna. Kaup­verðið verður greitt með hlutum í Fjar­skiptum að and­virði 1,7 millj­arða króna, 500 millj­ónum króna í reiðufé og yfir­töku á 4,6 millj­arða króna vaxta­ber­andi skuld­um. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands.

Kaup­verðið er umtals­vert lægra en til­kynnt var um að það ætti að vera þegar sam­komu­lag um einka­við­ræður var und­ir­ritað í lok ágúst síð­ast­lið­ins. Þá var sagt að greiða ætti 3,4 millj­arða króna, 1,7 millj­arða króna í reiðufé og sömu upp­hæð í hlutum í Voda­fo­ne, auk þess sem tekið yrði yfir 4,6 millj­arða króna af vaxta­ber­andi skuld­um.

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að sam­komu­lag um lægra kaup­verð greiði fyrir kaup­samn­ings­gerð og enn sé stefnt að því að ljúka kaup­unum á fyrstu vikum nýs árs. „Áfram er því ráð­gert að ganga frá kaup­unum um mitt ár 2017, að fengnu sam­þykki við­kom­andi eft­ir­lits- og hags­muna­að­ila. Nánar verður gert grein fyrir for­sendum við­skipt­anna þegar kaup­samn­ingur liggur fyr­ir.“

Auglýsing

Ekki komið á hreint hvort frétta­stofa 365 fari með

Það sem Voda­­fone vill kaupa er sjón­­varps- og útvarps­­­rekstur 365 miðla ásamt fjar­­skipta­hluta fyr­ir­tæk­is­ins. Það þýðir að sjón­­varps­­stöðvar á borð við Stöð 2, Stöð 2 Sport, Stöð 3 og Bíórás­ina eru undir ásam­t út­­varps­­stöðv­­um á borð við Bylgj­una, FM957 og X-ið. Eignir sem eru und­an­­skildar eru Frétta­­blaðið og vef­­ur­inn Vís­­ir.is

Í dag eru frétta­­stofa 365 miðla, sem fram­­leiðir efni í alla miðla fyr­ir­tæk­is, ein ein­ing. Þ.e. hún vinnur efni inn í dag­­blaðið Frétta­­blað­ið, á vef­inn Vísi.is, í sjón­­varps­fréttir Stöðvar 2 og á útvarps­­­stöðvar fyr­ir­tæk­is­ins. Hún til­­heyrir því bæði ljós­vaka­hlut­an­um, sem Voda­­fone vill kaupa, og prent- og vef­hlut­an­um, sem skilin verður eftir í 365 mið­l­­um.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Voda­fone liggur enn ekki fyrir hvort eða hvaða hluti frétta­stofu 365 fylgi með yfir til Voda­fone í kaup­un­um. Það verði útfært nú þegar fyrir liggur að sam­komu­lag hafi náðst um kaup­verð.

Voda­fone mun styrkj­ast við kaupin á 365

Íslenskum far­síma­mark­aði er bróð­ur­lega skipt upp í þrennt. Nova er með mesta mark­aðs­hlut­deild (34,4 pró­sent) og Sím­inn með næsta mesta (33,7 pró­sent). Þriðji ris­inn á fjar­­skipta­­mark­aði er síð­an Voda­fone. Því hefur tek­ist að halda vel á áskrift­­ar­­fjölda sínum á far­síma­­mark­aði og raunar bætt við sig rúm­lega sex þús­und við­skipta­vinum frá miðju ári í fyrra. Alls ­nemur mark­aðs­hlut­­deild fyr­ir­tæk­is­ins 27,5 pró­­sent­­um.

365 sam­ein­að­ist Tali í des­em­ber 2014 og tók þar með yfir far­síma­við­­skipti síð­­­ar­­nefnda ­fyr­ir­tæk­is­ins. Alls eru við­­skipta­vinir 365 í far­síma­­þjón­­ustu nú um 16.335 tals­ins. Það er umtals­vert færri við­­skipta­vinir en Tal var með í árs­­lok 2012, þegar þeir voru um 20 þús­und.

Verði af kaupum Voda­fone á 365 miðlum mun Voda­fone auka veltu sína um hátt í tíu millj­­arða króna og vera mun betur í stakk búið til að keppa við sinn að­al­keppi­­naut, Sím­ann sem þegar rek­ur víð­­feðm­a ­sjón­varps­­þjón­ustu, á sjón­­varps­­mark­að­i. Sam­an­lagt verða við­skipta­vinir hins sam­ein­aða fyr­ir­tæki á far­síma­mark­aði 136.023 og sam­eig­in­leg mark­aðs­hlut­deild 31,2 pró­sent. Voda­fone verður því ekki langt frá Sím­an­um, sem er með 33,7 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á far­síma­mark­aði, og Nova, sem er með 34,4 pró­sent hlut­deild.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None