Skúli viðskiptamaður ársins en Borgun verstu viðskiptin

Skúli Mogensen, stofnandi og forstjóri WOW air.
Skúli Mogensen, stofnandi og forstjóri WOW air.
Auglýsing

Skúli Mog­en­sen, stofn­andi og for­stjóri WOW air, er við­skipta­maður árs­ins að mati Mark­að­ar­ins, fylgi­blaðs Frétta­blaðs­ins um efna­hags­mál og við­skipti. Sala Novator á íslenska fjar­skipta­fyri­tæk­inu Nova til ­banda­ríska eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Pt Capi­tal Advis­ors fyrir rúm­lega 16 millj­arða króna voru valin við­skipti árs­ins af dóm­nefnd blaðs­ins. Sala Lands­bank­ans á hlut sínum í Borg­un, sem fór fram í nóv­em­ber 2014, var valin verstu við­skipti árs­ins en í ár kom í ljós að kaup­endur að hlutnum fengu í s­inn hlut mik­inn sölu­hagnað vegna eign­ar­hlutar Borg­unar í Visa Europe þegar það var selt til Visa Inc. Lands­bank­inn hafði ekki tryggt sér val­rétt að eign­ar­hlutnum eins og gert hafði verið við sölu á Valitor. Frá þessu er greint í Mark­aðnum í dag.

WOW air hefir vaxið mjög hratt frá því að fyrsta flug félags­ins var ­flog­ið vorið 2012. Í ár hafa far­þegar þess verið 1,6 millj­ónir tals­ins (voru 740 þús­und 2015) og þot­ur WOW air eru orðnar 12 (voru fimm 2015). Þá flýgur félagið til yfir 30 á­fanga­staða (voru 19 2015) í Evr­ópu og Norður Amer­ík­u.  Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2016 hagn­að­ist félagið um 4,4 millj­arða króna.

Skúli segir í við­tali við Mark­að­inn að enn frek­ari vöxtur sé fram und­an. Útlit sé fyrir að hann verði um 70 pró­sent á næsta ári. Ferða­menn­irnir séu ekk­ert að fara frá Íslandi. Mik­ill vöxtur verði í flugi til Banda­ríkj­anna og þá sé Asíu­æv­in­týri mögu­lega handan við horn­ið. „Það er ekk­ert laun­ung­ar­mál að við horfum til Asíu og ann­arra fjar­lægra landa. Ég sé bæði tæki­færi í flugi til og frá þessum löndum til Íslands, en jafn­framt end­ur­speglar þetta fyrst og fremst þá sýn að Ísland geti orðið mjög stór alþjóð­leg tengi­m­ið­stöð fyrir flug. Mið­stöðin myndi þá tengja saman Asíu, Norð­ur­-Am­er­íku og Evr­ópu.“

Auglýsing

Stjórn­völd unnu í fyrra

Í fyrra valdi Mark­að­ur­inn sam­komu­lag stjórn­­­valda við kröf­u­hafa föllnu bank­anna um greiðslu stöð­ug­­leika­fram­lags og und­an­þágu frá fjár­­­magns­höftum til að klára slit ­búa Glitn­is, Lands­­bank­ans og Kaup­­þings sem við­­skipti árs­ins 2015 . Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi fjár­mála­ráð­herra, veittu verð­laun­unum við­töku.

Þá valdi dóm­­nefndin ­sölu Arion banka á tíu pró­­sent hlut í Sím­­anum til val­inna aðila á und­ir­verði í að­drag­anda skrán­ingar félags­­ins á markað í októ­ber hafi verið verstu við­­skipt­i árs­ins. 

Árni Oddur Þórð­­ar­­son, ­for­­stjóri Mar­el, var val­inn við­­skipta­­maður árs­ins 2015 en mik­ill við­­snún­­ing­ur hafði orðið í rekstri fyr­ir­tæk­is­ins. Hann hafði hlot­ið ­sömu nafn­­bót hjá Frjálsri versl­un.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None