Magnús Geir: Ekki tilefni til afsökunarbeiðni frá RÚV

Magnús Geir RÚV
Auglýsing

Magnús Geir Þórð­ars­son útvarps­stjóri hefur svarað bréfi Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar, þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í morg­un. Þar fór Sig­mundur Davíð fram á afsök­un­ar­beiðni frá RÚV vegna þess hvernig komið hafi verið fram við hann og konu hans. 

Magnús Geir vísar þessu á bug í bréfi sínu, sem birt­ist á vef RÚV. Hann seg­ist marg­sinnis hafa farið yfir umfjöllun RÚV um Panama­skjölin og Sig­mund Davíð með Rakel Þor­bergs­dóttur frétta­stjóra og ætið blasi það sama við: „frétta­gildi máls­ins er ótví­rætt og það átti erindi við almenn­ing í land­inu. Þær upp­lýs­ingar sem fram komu í umræddum þætti standa og hafa ekki verið hrakt­ar. Með umræddum frétta­flutn­ingi var Rík­is­út­varpið að sinna sínu hlut­verki og skyld­um. Því er ekki til­efni til afsök­un­ar­beiðni Rík­is­út­varps­ins vegna máls­ins.“ 

Fjöl­miðlar eigi að vera full­trúar almenn­ings og þeim beri að spyrja kjörna full­trúa út í mál­efni er hann varða. Það sama eigi við um Sig­mund Davíð og aðra kjörna full­trúa. „Sig­mundur Davíð hefur ítrekað fengið tæki­færi til að koma sínum sjón­ar­miðum á fram­færi og fjallað hefur verið um þau í miðlum RÚV.“ 

Auglýsing

Magnús Geir segir að störf Rík­is­út­varps­ins séu opin­berar og almenn­ingur geti lagt sjálf­stætt mat á þau en stofn­unin njóti yfir­burða­trausts meðal almenn­ings sam­kvæmt mæl­ing­um. 

„Ef almenn­ingur er ósáttur við til­tekin atriði í frétta­flutn­ingi, þá tekur RÚV fús­lega við athug­semdum og svarar með form­legum hætti. Ef við­kom­andi er ósáttur við þá afgreiðslu sem hann fær hjá stofn­un­inni, þá er hægt að beina mál­inu til sjálf­stæðrar siða­nefndar sem leggur sjálf­stætt mat á fram­göngu starfs­manna RÚV en að auki má benda á að allir geta skotið málum til Blaða­manna­fé­lags Íslands.  Ef þing­mað­ur­inn telur á sig hallað þá hvet ég hann til að beina málum í þennan form­lega far­veg sem er til staðar fyrir hann eins og aðra.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None