Lilja vill ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki og Vinstri grænum

Lilja Alfreðsdóttir
Auglýsing

Lilja Alfreðs­dótt­ir, utan­rík­is­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, seg­ist vilja sjá stjórn síns flokks, Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna. Það sé orðið tíma­bært að mynda slíka breiða stjórn. Leggja þurfi áherslu á upp­bygg­ingu inn­viða í stað þess Evr­ópu­sam­bandsum­sókn­ar, sem ekki væri sátt um. Þetta kom fram í við­tali við hana í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morg­un. 

Greint var frá því í gær að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Vinstri græn hafi verið að ræða saman um mögu­lega sam­starfs­fleti í stjórn­ar­sam­starfi eða í stjórn­ar­and­stöð­u. . „Við höfum til að mynda verið að ræða við VG og skoða hvort það væru ein­hverjir sam­starfs­fletir hjá okk­ur. Það vill nú bara þannig til að það er margt mjög spenn­andi og fram­sækið þegar þessir flokkar fara til að mynda að tala sam­an. Það er margt sem sam­einar okk­ur,“ segir Lilja.

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­­maður Vinstri grænna, stað­­fest í gær að flokkur hennar hafi átt í ófor­m­­legum við­ræðum við Fram­­sókn­­ar­­flokk og Sam­­fylk­ingu um félags­­­legar áherslur sem flokk­­arnir þrír geti sam­ein­­ast um hvort sem er við stjórn­­­ar­­myndun eða í stjórn­­­ar­and­­stöðu. Hún sagði þó ótíma­­bært og ekki við hæfi að svara spurn­ingum um hvort þessir flokkar stefndu á stjórn­­­ar­­mynd­­ar­við­ræður við Sjálf­­stæð­is­­flokk­inn. 

Auglýsing

Frétta­­­blaðið greindi hins vegar frá því í gær­morgun að sátt hafi náðst í öllum þeim stóru málum sem steytti á í síð­­­­­ustu tveimur við­ræð­u­lotum milli Sjálf­­­stæð­is­­­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­­­tíð­­­ar. Þar segir að þjóð­­­ar­at­­­kvæða­greiðsla verði haldin um hvort hefja eigi aðild­­­ar­við­ræður að Evr­­­ópu­­­sam­­­band­inu að nýju og að ákvæði verði í stjórn­­­­­ar­sátt­­­mála um að skoð­­­anir rík­­­is­­­stjórn­­­­­ar­­­flokk­anna á mál­inu séu afar mis­­­mun­andi. Þeim verði því í sjálf­­­vald sett hvernig þeir greiði atkvæði um þings­á­­­lyktun um atkvæða­greiðsl­una. Sam­­­kvæmt þessu mun málið því verða sett til þings­ins í formi þings­á­­­lykt­unar og án fulls stuðn­­­ings nýrrar rík­­­is­­­stjórn­­­­­ar. Það mun svo ákveða hvort atkvæða­greiðslan fari fram eður ei.

Ótt­­arr Proppé, for­­maður Bjartrar fram­­tíð­­ar, stað­­festi í Morg­un­út­­varp­inu á Rás 2 í gær að við­ræður flokks hans, Við­reisnar og Sjálf­­stæð­is­­flokks væru lengra komnar en fyrri stjórn­­­ar­­mynd­un­­ar­við­ræð­­ur. Allir flokk­­arnir hafi gefið eitt­hvað eftir frá kosn­­in­­um. Stjórn­­­ar­sátt­­máli væri hins vegar ekki und­ir­­rit­aður enn sem kom­ið.

Við­ræður flokk­anna þriggja hófust form­lega í gær en Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fékk form­lega stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð á föstu­dag.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None