Rúmur fjórðungur stjórnar Bjartrar framtíðar á móti stjórnarsáttmála

Björt Ólafsdóttir og Óttarr Proppé, verðandi fyrstu ráðherrar Bjartrar framtíðar í sögu flokksins.
Björt Ólafsdóttir og Óttarr Proppé, verðandi fyrstu ráðherrar Bjartrar framtíðar í sögu flokksins.
Auglýsing

Rúmur fjórð­ungur stjórn­ar­manna í Bjartri fram­tíð greiddi atkvæði gegn sam­þykkt stjórn­ar­sátt­mála verð­andi rík­is­stjórnar Bjarna Bene­dikts­son­ar, sem Björt fram­tíð á aðild að ásamt Sjálf­stæð­is­flokki og Við­reisn. Stjórn­ar­sátt­mál­inn var sam­þykktur í flokks­ráði Sjálf­stæð­is­flokks án nán­ast nokk­urra mót­mæla og hlaut dynj­andi lófa­klapp að því loknu. Hann var einnig sam­þykktur án athuga­semda í ráð­gjafa­ráði Við­reisn­ar. Fundi stjórnar Bjartrar fram­tíðar lauk síðar en fundi hinna tveggja flokk­anna og lauk ekki fyrr en seint á ell­efta tím­anum í gær. Í Morg­un­blað­inu segir að að loknum umræðum hafi hann verið sam­þykktur í raf­rænni atkvæða­greiðslu með 51 atkvæði en 18 voru á móti. Það þýðir því að tæp­lega 73 pró­sent þeirra stjórn­ar­manna sem greiddu atkvæði sam­þykktu sátt­mál­ann en rúm­lega 27 pró­sent voru á mót­i. 

Nýr stjórn­ar­sátt­máli verður und­ir­rit­aður eftir hádegi í dag. Það mun þó ekki skýr­ast fyrr en í kvöld hverjir verða ráð­herrar í nýrri rík­is­stjórn þegar þing­flokkar stjórn­ar­flokk­anna funda. Fyrir liggur að Ótt­arr Proppé verður heil­brigð­is­ráð­herra og Björt Ólafs­dóttir umhverf­is­ráð­herra. Þá mun Bene­dikt Jóhann­es­son verða fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir verður félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra og Þor­steinn Víglunds­son verður sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra. En hefur ekki feng­ist stað­fest hverjir muni setj­ast í ráð­herra­stóla fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn en Bjarni sagði í fréttum RÚV í gær að hann myndi ekki leita út fyrir þing­flokk­inn eftir ráð­herra­efni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None