Fréttamönnum 365 stefnt vegna umfjöllunar um Hlíðamálið

Fjórum fréttamönnum fréttastofu 365 miðla hefur verið stefnt vegna fréttaflutnings af Hlíðamálinu svokallaða.
Fjórum fréttamönnum fréttastofu 365 miðla hefur verið stefnt vegna fréttaflutnings af Hlíðamálinu svokallaða.
Auglýsing

Fjórum frétta­mönnum 365 miðla hefur verið stefnt vegna umfjöll­unar þeirra um Hlíða­málið svo­kall­aða. Það eru menn­irnir tveir sem sak­aðir voru um nauðgun í mál­inu sem stefna frétta­mönn­un­um. RÚV segir frá þessu og hefur stefn­una undir höndum sem þing­fest var í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur á fimmtu­dag.

Í stefn­unni er farið fram á að frétta­menn­irnir greiði mönn­unum sam­tals 12,5 millj­ónir króna í miska­bætur hvorum um sig. Einnig er farið fram á að 32 ummæli sem birt­ust í Frétta­blað­inu, á Vísi.is, í fréttum Bylgj­unnar og Stöðvar 2 verði dæmd dauð og ómerk. Öll féllu ummælin dag­ana 5. til 9. nóv­em­ber 2015. Einnig kemur fram í stefn­unni að öðrum mann­inum hafi verið gert að hætta námi við Háskól­ann í Reykja­vík vegna máls­ins og hinn hafi misst vinn­una. Báðir hafi glímt við langvar­andi kvíða og þung­lyndi vegna máls­ins.

Um­rædd­ir frétta­­menn eru Nadine Guð­rún Yag­hi, Heim­ir Már Pét­­ur­s­­son, Þór­hild­ur Þor­kels­dótt­ir og Stefán Rafn Sig­­ur­­björns­­son, að því er fram kemur í frétt mbl.is af stefn­unni.

Auglýsing

Sam­kvæmt því sem fram kemur á vef RÚV segir í stefn­unni að vegna frétta­flutn­ings 365 hafi allt farið á annan end­ann. Frétta­maður 365 miðla hafi farið að húsi eins mann­anna og flutt frétt úr stiga­gangi heim­ilis hans og birt myndir af hús­inu. Á tíma­bili hafi menn­irnir ótt­ast um líf sitt vegna múgæs­ings sem mynd­ast hafði í kjöl­far frétta­flutn­ings­ins.

For­­saga máls­ins er sú að Frétta­­blaðið birti for­­síð­u­frétt í nóv­­em­ber 2015 undir fyr­ir­­sögn­inni: „Íbúð í Hlíð­unum útbúin til nauð­g­ana“. Áður hafði verið sagt frá rann­­sókn lög­­­reglu á tveimur aðskildum kyn­­ferð­is­brota­­málum vegna meintra árása í fjöl­býl­is­­­húsi í Hlíða­hverfi í Reykja­vík í októ­ber. Tvær ­konur kærðu tvo karl­­­menn fyrir kyn­­­ferð­is­brot í mál­inu og í frétt Frétta­­­blaðs­ins sagði að „Sam­­­kvæmt heim­ildum blaðs­ins voru árás­­­irnar hrotta­­­legar og íbúðin búin tækjum til ofbeld­isið­k­un­­­ar“. Fram kom í frétt­inni að mönn­unum hafði svo verið sleppt að lok­inni skýrslu­­­töku.

Mikil reið­i­alda reis í kjöl­far frétt­­ar­inn­­ar, boðað var til mót­­mæla fyrir utan lög­­­reglu­­stöð­ina á Hverf­is­­götu og menn­irnir voru nafn­­greindir á sam­­fé­lags­miðlum og birtar af þeim mynd­­ir.

Rann­­sóknir á nauð­g­un­­ar­kær­unum fóru á borð hér­­aðs­sak­­sókn­­ara og lét hann bæði málin niður falla. Annar mað­­ur­inn hafði einnig kært aðra kon­una fyrir kyn­­ferð­is­brot en það mál var líka látið niður falla.

Vil­hjálmur Vil­hjálms­son er lög­maður mann­anna tveggja sem nafn­greindir voru á sam­fé­lags­miðlum eftir birt­ingu frétt­ar­inn­ar. Í byrjun febr­­úar í fyrra ítrek­aði Vil­hjálmur kröfur sínar til Frétta­­blaðs­ins um að það greiði umbjóð­endum sínum 20 millj­­ónir í miska­bætur fyrir frétt­ina og biðj­ist afsök­unar vegna umfjöll­unar blaðs­ins um mál­ið. Frétta­­blaðið neit­aði þessum kröfum og hefur Kristín Þor­­steins­dótt­ir, rit­­stjóri blaðs­ins, sagt að blaðið standi við frétt­ina.

Fram kemur í stefn­unni að frétta­mönn­unum fjórum hafi verið boðið að ljúka mál­inu án aðkomu dóm­stóla en að kröfu­bréfum hafi verið hafn­að.

Vil­hjálmur hefur einnig sent tugum ein­stak­linga kröfu­bréf þar sem kraf­ist var afsök­un­ar­beiðni og miska­bóta vegna ummæla sem féllu á sam­fé­lags­miðlum eða í fjöl­miðlum um mál­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None