Benedikt um ráðherradóm: Er ég í vitlausu leikriti?

Benedikt Jóhannesson rekur hugleiðingar sínar í kringum formlegar athafnir í fæðingu ríkisstjórnarinnar í pistli á vefsíðu sinni.

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra.
Auglýsing

„Mér varð hugsað til þess hvort maður væri ekki lentur í vit­lausu leik­rit­i,“ skrifar Bene­dikt Jóhann­es­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Við­reisn­ar, í pistli á vef­síð­una heim­ur.­is. Í pistl­inum rekur Bene­dikt hug­leið­ingar sínar í kringum form­legar athafnir í fæð­ingu rík­is­stjórn­ar­innar sem hann mynd­aði með Bjarna Bene­dikts­syni og Ótt­ari Proppé.

„Nú sátum við þarna við end­ann, Guðni Th. og ég, rúm­lega átta mán­uðum eftir að ég spjall­aði við hann og hvatti til for­seta­fram­boðs með til­heyr­andi plott­i,“ skrifar Bene­dikt um upp­haf rík­is­ráðs­fund­ar­ins þegar Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, stofn­aði ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar 11. jan­úar síð­ast­lið­inn. „Þá hafði hvor­ugur okkar nokkru sinni boðið sig fram til opin­bers emb­ætt­is. Svona er þetta líf skrít­ið.“

„Það sama og síð­ast og þar áður.“

Áður en blaða­manna­fundur þeirra Bene­dikts, Bjarna og Ótt­ars hófst í Gerð­ar­safni í Kópa­vogi fengu verð­andi leið­togar nýrrar rík­is­stjórnar farða fyrir kvik­mynda­vél­arnar í einum sal safns­ins. Bene­dikt segir að þar hafi verið allt á rúi og stúi og að Svan­hildur Hólm, aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar til nokk­urra ára, hafi strang­lega bannað þeim að veita fjöl­miðlum við­töl í þessum sal. „Það fannst mér skilj­an­legt, allt á rúi og stúi og ekki skemmti­legt við­talslókal,“ skrifar Bene­dikt.

Auglýsing

Og það mátti alls ekki taka af þeim myndir við vegg­ina í saln­um. Þar var búið að hengja upp lista­verk fyrir sýn­ingu ein­hvers konar og á einum veggnum var „sér­kenni­legt verk“, skrifar Bene­dikt. „Það var röð af ljós­myndum sem allar voru eins. Tvær raðir reynd­ar. Á mynd­unum voru stafir, einn á hverri. Text­inn var eitt­hvað á þessa leið:

„Það sama og síð­ast og þar áður.“

Ég varð að við­ur­kenna að þetta hefði ekki verið heppi­legur bak­grunnur fyrir blaða­manna­fund nýrrar rík­is­stjórn­ar.“

Þorði ekk­ert að segja

Rík­is­ráðs­fundir eru alltaf mjög form­legir við­burðir og það sem fram fer á þeim fundum eru iðu­lega trún­að­ar­mál þeirra sem fund­inn sitja. Fund­ur­inn 11. jan­úar var fyrsti rík­is­ráðs­fundur Bene­dikts sem seg­ist hafa fund­ist það „skrít­ið“ að þurfa að skrifa undir yfir­lýs­ingu um að hann myndi gegna emb­ætti fjár­mála­ráð­herra með „guðs hjálp og hinnar helgu bók­ar“. „[E]n þetta trufl­aði mig svosem ekk­ert.“

Sem fjár­mála­ráð­herra hefur Bene­dikt lyklana að rík­is­kass­anum (í óeig­in­legri merk­ing­u), eins og hann benti sjálfur á þegar hann tók við lyklunum að skrif­stofu fjár­mála­ráð­herra úr hendi Bjarna Bene­dikts­son­ar. Í pistli sínum við­ur­kennir Bene­dikt að hafa velt fyrir sér hvort það væri ekki kom­inn tími á að lappa aðeins upp á gamla, lasna rík­is­stjórn­ar­borð­ið. „Er ekki rétt að for­seta­emb­ættið fái auka­fjár­veit­ingu til þess að lappa upp á þetta borð­skrifli? hugs­aði ég, en þorði auð­vitað ekk­ert að segja.“

Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar við ríkisstjórnarborðið lúna. Nær allar ríkisstjórnir Íslands hafa komið saman við þetta borð á ríkisráðsfundum síðan Ólafur Jóhannesson tók við forsætisráðuneytinu 1971 þegar Kristján Eldjárn var húsbóndi á Bessastöðum.

Bene­dikt þurfti ann­ars ekk­ert að segja á fund­in­um. Guðni for­seti og Bjarni for­sæt­is­ráð­herra sáu um það og voru þau orða­skipti að mestu form­fastar línur „úr kans­ellí­in­u“, skrifar Bene­dikt.

Eftir þennan fyrsta rík­is­ráðs­fund hafði ráðu­neyti Bjarna Bene­dikts­sonar form­lega tekið við stjórn­ar­taumunum og nýir ráð­herrar stefndu á nýja vinnu­staði sína til þess að taka við lyklum úr hendi for­vera þeirra. „Betra gat það ekki orð­ið,“ skrifar Bene­dikt að lok­um. „Nú er hægt að byrja að vinna.“

Pistil­inn má lesa á vefnum heim­ur.is

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None