28 hafa sótt um leyfisnúmer fyrir heimagistingu

Örfáir hafa tilkynnt um heimagistingu sína til stjórnvalda eftir að ný lög tóku gildi. 28 hafa sótt um leyfisnúmer. 2.662 íslenskar skráningar er að finna á Airbnb síðustu 30 daga.

Aðeins fáeinar eignir hafa verið skráðar til skammtímaleigu eftir að ný lög tóku gildi um áramótin.
Aðeins fáeinar eignir hafa verið skráðar til skammtímaleigu eftir að ný lög tóku gildi um áramótin.
Auglýsing

Aðeins 28 hafa sótt um leyf­is­númer fyrir sölu á heimagist­ingu eftir að ný lög um skamm­tíma­leigu á hús­næði gengu í gildi um ára­mót­in. Síð­ast þegar leigu­vef­ur­inn Air­bnb gaf upp tölur um fjölda íslenskra skrán­inga á vefnum voru þær nærri fjögur þús­und í jan­úar í fyrra. Síð­asta mán­uð­inn hafa 2.662 skrán­ingar verið virkar á vefn­um. Frá þessu er greint á vefnum Túrist­i.is.

Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sér um skrán­ingu leyf­is­núm­era. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Túrista.is hefur verið sótt um leyf­is­númer fyrir aðeins 28 eign­ir. Í lög­gjöf­inni um tak­mark­anir á útleigu heim­ila og fast­eigna sem tók gildi um ára­mótin er fjöldi þeirra daga sem fast­eign getur verið í útleigu tak­mark­aður við 90 daga á ári, nema sótt sé um sér­stakt rekstr­ar­leyfi. Allir sem hyggj­ast leigja út hús­næði sitt á skamm­tíma­leigu verða hins vegar að sækja um skrán­ing­ar­númer og birta það með aug­lýs­ingu hús­næð­is­ins á vefn­um.

Í laus­legri könnun Túrista á íslenskum skrán­ingum á Air­bnb fannst ekk­ert skrán­ing­ar­númer með aug­lýs­ing­um. Sýslu­mað­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mun halda úti könnun á leigu­vefjum og ganga þannig úr skugga um að skrán­ing­ar­núm­erin séu sýni­leg. Sé skrán­ing­ar­núm­erið ekki sýni­legt geta stjórn­völd lagt stjórn­valds­sektir á eig­anda hús­næð­is­ins. Nánar er fjallað um skil­yrði heimagist­ingar á vefnum gest­ur.is.

Auglýsing

Fjöldi gist­i­­rýma í útleigu hér á landi hefur marg­fald­­ast á síð­­­ustu árum og þá gildir einu um hvort það eru heilar íbúðir eða afmörkuð her­bergi sem eru í boði. Á Air­bn­b.com hefur verið hægt að finna 3.104 skráð gist­i­­rými síð­­­ustu 30 daga í Reykja­vík. Þessi fjöldi var að jafn­­aði um 1.700 gist­i­­rými árið 2015 og rúm­­lega 700 árið 2014. 73,2 pró­­sent þeirra sem bjóða upp á leigu í Reykja­vík á vef Air­BnB bjóða heila íbúð til leigu. Í 59 pró­­sent til­­vika voru eignir í Reykja­vík sam­tals í útleigu í minna en þrjá mán­uði und­an­farið ár.

Kjarn­inn fjall­aði um tak­mark­anir á skamm­tíma­leigu hús­næðis í Reykja­vík og víðar í byrjun des­em­ber í fyrra.

Til þess að fá skrán­ing­­ar­­númer verða ein­stak­l­ingar sem ætla að leigja út íbúð­ina sína eða hluta af heim­ili sínu að upp­­­fylla ákveðnar kröfur um bruna­varn­ir, ástand og húsa­kynnin verða að vera sam­­þykkt sem íbúð. Sér­­stakt árgjald að upp­­hæð 8.000 krónur þarf einnig að greiða fyrir skrán­ing­una. Allar þessar kröfur eru gerðar til þess að ein­falda og bæta eft­ir­lit með leyf­­is­­lausri starf­­semi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None