Pressan skilar hagnaði – Skuldir sexfaldast á tveimur árum

Pressan ehf., eigandi DV og fjölda annarra fjölmiðla, hefur skilað ársreikningi. Samsteypan skuldar 444 milljónir króna en bókfærir hagnað og eignir upp á 600 milljónir. Engar upplýsingar liggja fyrir um lánveitendur.

Björn Ingi Hrafnsson er annar aðaleiganda Pressunnar.
Björn Ingi Hrafnsson er annar aðaleiganda Pressunnar.
Auglýsing

Pressan ehf., eitt umsvifa­mesta fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins, skil­aði ell­efu millj­óna króna hagn­aði á árinu 2015 sam­kvæmt nýbirtum árs­reikn­ingi þess. Skuldir sam­stæð­unnar juk­ust að að sama skapi úr 272 millj­ónum króna í 444 millj­ónir króna á árinu. Þær hafa rúm­lega sexfald­ast frá árinu 2013. Ekki kemur fram hverjir lán­veit­endur Pressunnar eru. Dótt­ur­fé­lag Pressunn­ar, Vef­pressan ehf., tap­aði hins vegar 20 millj­ónum króna á árinu 2015. Annað dótt­ur­fé­lag henn­ar, Eyjan miðlar ehf., tap­aði 6,6 millj­ónum króna á sama ári. DV ehf., sem rekur DV og og DV.is, hefur ekki birt árs­reikn­ing sinn.

Hafa sankað að sér fjöl­miðlum

Pressan ehf. hefur verið umsvifa­­mikil á fjöl­miðla­­mark­aði á und­an­­förnum árum. Fyr­ir­tækið keypti m.a. DV seint á árinu 2014 og rekur auk þess fjölda vefa og viku­­blaða. Þeirra á meðal eru Pressan, Eyj­an, DV.is og Bleikt.is. Í haust bætt­ust sjón­varps­stöðin ÍNN og tíma­rita­út­gáfan Birt­ingur við eigna­safn Pressunn­ar.

Eig­endur Pressunnar ehf. eru að stærstu leyti félög í eig­u ­Björns Inga Hrafns­­sonar og Arn­­ars Ægis­­son­­ar, sam­­starfs­­manns hans í fjöl­miðla­­rekstri til margra ára. Þeir eiga sam­tals 82 pró­sent í Press­unni. Aðrir eig­endur eru Steinn Kári Ragn­ars­son, sem á tíu pró­sent, og Jakob Hrafns­son, bróðir Björns Inga, sem á átta pró­sent hlut.

Auglýsing

Skuldir auk­ist mikið

Skuldir Pressu­sam­stæð­unnar hafa auk­ist gríð­ar­lega á skömmum tíma sam­hliða yfir­töku á mýmörgum fjöl­miðl­um. Í árs­lok 2013 skuld­aði Pressan 69 millj­ónir króna en tveimur árum síðar voru skuld­irnar komnar í 444 millj­ónir króna. Þær sam­an­standa af 206 millj­óna króna hlut­haf­a­láni, skulda­bréfa­láni upp á 50 millj­ónir króna sem veitt var árið 2015 og óskil­greindum skamm­tíma­skuldum upp á 188 millj­ónir króna.

Sam­hliða auk­inni skuld­setn­ingu hefur bók­fært virði eigna auk­ist umtals­vert. Þær eru nú 601 milljón króna og nán­ast tvö­fald­ast á milli ára. Þar munar mest um að við­skipta­vild og þró­un­ar­kostn­aður hækkar um tæpa 50 millj­ónir króna í 172 millj­ónir króna, að eign­ar­hlutur í öðrum félögum er met­inn á um 146 millj­ónir króna, að útgáfu­réttur er met­inn á 33 millj­ónir króna og að útistand­andi við­skipta­kröfur fara úr 16 millj­ónum króna í 178 millj­ónir króna.

Rekstr­ar­reikn­ingur Pressunnar er sam­an­dreg­inn og engar upp­lýs­ingar er þar að finna um hver velta fyr­ir­tæk­is­ins var á árinu 2015 né úr hverju hagn­aður þess er sam­sett­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None