Bjarni spyr hvort Píratar hafi ekki getað unnt Framsókn nefndarformennsku

7DM_4365_raw_1637.JPG
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra spyr hvort það geti verið að Píratar hafi ekki geta unnt Fram­sókn­ar­flokknum að leiða efna­hags- og við­skipta­nefnd og hafi „frekar viljað kasta öllu frá sér til að koma þeirri sögu á kreik að stjórnin hafi ekk­ert boð­ið?“. Þess í stað hafi ekki náðst sam­komu­lag um að stjórn­ar­and­staðan fengi for­mennsku í þremur af átta fasta­nefndum Alþing­is, líkt og stjórn­ar­flokk­arnir þrír hefðu sam­þykkt. Stjórn­ar­flokk­arnir munu að öllum lík­indum verða með for­menn í öllum fasta­nefnd­unum átta. 

Bjarni segir í stöðu­upp­færslu á Face­book að komið hafi fram ein­dregin vilji stjórn­ar­and­stöðu um að fá for­mennsku í þremur nefnd­um, í stað tveggja eins og á síð­asta kjör­tíma­bili. Þá hafði stjórn­ar­and­staðan for­mennsku í vel­ferð­ar­nefnd og stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd og stóð sú for­mennska áfram til boða. Til stóð að tveir stærstu stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arn­ir, Vinstri græn og Pírat­ar, myndu fá for­mennsku í þeim nefnd­um. Bjarni segir að kæmi til þess að samið yrði um þriðju for­mennsk­una þá yrði það til að tryggja að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn færi fyrir einni nefnd, enda væri hann þriðji stærsti flokk­ur­inn. „Þessi sam­töl þró­uð­ust með þeim hætti að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sótt­ist eftir eftir for­mennsku í efna­hags- og við­skipta­nefnd. Af hálfu stjórn­ar­flokk­anna var það sam­þykkt. Með þessu höfðu stjórn­ar­flokk­arnir fall­ist á að fela stjórn­ar­and­stöðu for­ystu í fleiri nefndum en dæmi eru um.“

Auglýsing

Fyrr í dag voru sagðar af því fréttir að stjórn­ar­and­staðan hafi sagt stjórn­ar­flokk­anna hafa viljað skipta sér að því hvaða ein­stak­lingar myndu stýra nefndum sem hún fengi for­mennsku í. Það vildi stjórn­ar­and­staðan ekki sætta sig við og því muni hún hvorki taka við for­mennsku né vara­for­mennsku í nefnd­um. Bjarni segir að þar sé stjórn­ar­and­staðan að snúa öllu á haust á þann veg að þar sem sam­komu­lagið hafi snú­ist um að fall­ast á bón Fram­sókn­ar­flokks­ins um for­ystu í efna­hags- og við­skipta­nefnd þá hafi stjórn­ar­flokk­arnir viljað hafa áhrif á val stjórn­ar­and­stöð­unn­ar. „Því er slegið upp sem stað­reynd í fyr­ir­sögn fréttar á RÚV. Það væri nær að skrifa frétt um að stjórn­ar­and­staðan hafi gefið frá sér for­mennsku í þremur nefndum því hún gat ekki komið sér saman um hvað ætti að falla í hvers hlut. Getur verið að Píratar hafi ekki getað unnt Fram­sókn­ar­flokknum þess að leiða mik­il­væga nefnd og hafi frekar viljað kasta öllu frá sér til að koma þeirri sögu á kreik að stjórnin hafi ekk­ert boð­ið?“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None