Einungis 35 prósent styðja ríkisstjórnina

7DM_0176_raw_2059.JPG
Auglýsing

Sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna þriggja mælist 38,4 pró­sent. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist enn lægri, eða 35 pró­sent. Til sam­an­burðar mæld­ist stuðn­ingur við rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur 56,1 pró­sent í fyrstu mæl­ingu eftir að hún tók við í febr­úar 2009 og stuðn­ingur við rík­is­stjórn Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar 59,9 pró­sent þegar hann var fyrst mældur í byrjun júní 2013. Þetta kemur fram í nýrri könnun frá MMR.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærsti flokkur lands­ins með 24,6 pró­sent fylgi og dalar á milli kann­anna. Vinstri græn mæl­ast með 22 pró­sent og Píratar með 13,6 pró­sent, sem er minna en báðir flokkar höfðu í síð­ustu könnun MMR. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn bætir við sig og mælist nú með 12,5 pró­sent fylgi. Það gerir Sam­fylk­ingin líka og mælist nú með sjö pró­sent fylgi. Við­reisn heldur áfram að mæl­ast á svip­uðum slóðum og í und­an­förnum könn­unum – með 6,8 pró­sent fylgi— og er tölu­vert frá kjör­fylgi sínu. Björt fram­tíð virð­ist vera eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem græðir á stjórn­ar­sam­starf­inu í könn­unum  og fylgi flokks­ins mælist nú meira en Við­reisn­ar, eða sjö pró­sent. Mun­ur­inn er þó vel innan skekkju­marka. Athygli vekur að ef kosið yrði í dag myndi flokkur fólks­ins fá 3,6 pró­sent atkvæða. 

Þótt stuðn­ingur við rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar mælist mun minni en stuðn­ingur við síð­ustu tvær rík­is­stjórnir þegar þær voru að hefja stjórn­ar­tíð sína þá er hann fjarri því að ná lág­punktum þeirra rík­is­stjórna þegar kemur að stuðn­ingi. Vinstri­st­jórn­inn mæld­ist til að mynda með ein­ungis 22,8 pró­sent stuðn­ing í októ­ber 2010 og rík­is­stjórn Sig­mundar Dav­íðs mæld­ist með 26 pró­sent stuðn­ing í sömu viku og Wintris-­málið kom upp í fyrra. 

Auglýsing

Könn­unin var fram­kvæmd dag­ana 12. til 26. jan­úar 2017 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 910 ein­stak­ling­ar, 18 ára og eldri. Allar nið­ur­stöður hafa ein­hver vik­mörk sem miðað við 1000 svar­endur geta verið allt að +/-3,1 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None