Ólafur Ólafsson fær að bera höfnun á endurupptöku undir dómstóla

Ólafur Ólafsson.
Auglýsing

Ólafur Ólafs­­son, sem dæmdur var í fjög­­urra og hálfs árs fang­elsi í Al Than­i-­­mál­inu svo­­kall­aða, fær að bera ákvörðun end­ur­upp­töku­nefndar um að synja honum um end­ur­upp­töku máls­ins undir dóm­stóla. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hafn­aði í gær kröfu rík­is­ins um að vísa frá máli Ólafs á hendur rík­is­sak­sókn­ara og íslenska rík­inu þar sem farið er fram á efn­is­lega með­ferð máls­ins fyrir hér­aðs­dómi. Ólafur hafði einnig gert kröfu um að við­ur­kennt yrði að skil­yrði fyrir end­ur­upp­töku Al-T­hani máls­ins væru upp­fyllt. Þeirri kröfu hafn­aði hér­aðs­dómur á þeirri for­sendu að með því væru dóm­stólar að taka nýja ákvörðun sem end­ur­upp­töku­nefnd hefði verið falið, þótt dóm­stólar myndu eftir sem áður geta metið hvort ákvarð­anir nefnd­ar­innar væru í sam­ræmi við ákvæði laga.Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá KOM almanna­tengslum sem send er fyrir hönd Ólafs.

Í frétta­til­kynn­ing­unni er haft eftir Ólafi að stjórn­völd eigi „að bregð­ast við og leið­rétta alvar­leg mis­tök í rétt­ar­kerf­inu, líkt og þau sem gerð voru við með­ferð Al-T­hani máls­ins. Og þótt hafa megi á því ákveð­inn skiln­ing að sumir hverjir séu orðnir þreyttir á mála­rekstri vegna rann­sókna og dóms­mála síð­ustu ára, þá tel ég mik­il­vægt að berj­ast fyrir því að fólk njóti sann­mælis og rétt­látrar máls­með­ferð­ar. Rétt­indi fólks verður að tryggja.“

Ólafur stefndi emb­ætti rík­­is­sak­­sókn­­ara og íslenska rík­­inu fyrir Hér­­aðs­­dóm Reykja­vík­­ur í októ­ber og vill að úrskurður end­­ur­­upp­­­töku­­nefndar í mál­inu, sem féll í byrjun árs 2016, verði felldur úr gildi og við­­ur­­kennt að skil­yrði fyrir end­­ur­­upp­­­töku máls­ins séu upp­­­fyllt.

Auglýsing

Í febr­­úar var greint frá því að end­­­ur­­­upp­­­­­töku­­­nefnd hefur hafnað beiðnum Ólafs um end­­­ur­­­upp­­­­­töku Al Thani máls­ins. Í nið­­­ur­­­stöðu end­­­ur­­­upp­­­­­töku­­­nefndar vegna beiðni Ólafs sagði að það sé „hafið yfir allan skyn­­­sam­­­legan vafa“ að sá „Óli“ ­sem talað er um í sím­tali milli tveggja lög­­­­­manna, og var hluti gagna í mál­in­u, sé Ólafur Ólafs­­­son. Ólafur byggði end­­­ur­­­upp­­­­­töku­beiðni sína á því að svo væri ekki heldur að verið væri að ræða annan „Óla“.

Ólafur fór einnig fram á að málið yrði end­­­ur­­­upp­­­­­tekið vegna þess að tveir dóm­­­arar í Hæsta­rétti sem dæmdu í Al Than­i-­­­mál­inu, þeirra Árna Kol­beins­­­sonar og Þor­­­geirs Örlygs­­­son­­­ar, hefðu verið van­hæfir til að fella dóminn­ ­vegna þess að synir þeirra hefðu starfað hjá slita­­­stjórn Kauþings. Þess­­­ari á­stæðu var einnig hafnað af end­­­ur­­­upp­­­­­töku­­­nefnd.

Hreiðar Már Sig­­­urðs­­­son, fyrrum for­­­stjóri Kaup­­­þings, og ­Sig­­­urður Ein­­­ar­s­­­son, fyrrum stjórn­­­­­ar­­­for­­­maður Kaup­­­þings, fóru líka fram á end­­­ur­­­upp­­­­­töku Al Thani máls­ins vegna tengsla dóm­­­ara við syni sína og vegna þess að sönn­un­­­ar­­­gögn hefðu verið metin rangt. Þeirra beiðnum var einnig hafn­að.

Hreiðar Már fékk fimm og hálfs árs fang­elsi í Al Than­i-­mál­inu, Sig­­­urður fjögur ár, og Ólafur fjögur og hálft ár. Magnús Guð­­­munds­­­son, fyrr­ver­andi for­­­stjóri Kaup­­­þings í Lúx­em­­­borg, var líka dæmdur í fjög­­­urra og hálfs árs fang­elsi í mál­in­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None