Hugmynd um 20 prósent skatt á vörur frá Mexíkó fellur í grýttan jarðveg

Efnahagsstríð nýkjörins forseta Bandaríkjanna gegn Mexíkó er þegar búið að skapa hörðustu milliríkjadeilu milli landanna í áraraðir.

Donald Trump
Auglýsing

Don­ald J. Trump hefur farið af stað með látum frá því hann sór emb­ætt­is­eið­inn og tók við sem for­seti Banda­ríkj­ana fyrir um viku síð­an.

Fyrsta vikan hefur ein­kennst af gríð­ar­legum mót­mælum - raunar þeim mestu í sögu Banda­ríkj­anna með mót­mælum kvenna vítt og breitt um Banda­ríkin og heim­inn allan, dag­inn eftir emb­ætt­is­tök­una - og síðan umdeildum ákvörð­unum á færi­bandi. Flestar voru þær fyr­ir­sjá­an­legar og í takt við það sem hann sagði fyrir kosn­ingar en engu að síður hefur komið á óvart hvað þær hafa verið afdrátt­ar­laus­ar.

Þar á meðal voru ákvarð­anir um að aft­ur­kalla heil­brigð­is­trygg­ing­ar­kerfið sem nefnt hefur verið Obamacare, en það tryggði 20 millj­ónum manna aðgang að heil­brigð­is­trygg­ingu sem ann­ars höfðu hana ekki. Málið var eitt stærsta áherslu­mál Barack Obama.

Auglýsing

Þá hefur verið til­kynnt um að vegg­ur­inn á landa­mærum Banda­ríkj­anna og Mexíkó verði byggð­ur. Trump segir að Mexíkó muni greiða fyrir múr­inn en stjórn­völd þar hafa sagt að það komi ekki til greina. Í gær kynnti Sean Spicer, fjöl­miðla­full­trúi Don­alds Trump, hug­mynd um að lagður verði 20 pró­sent skattur á allar inn­fluttar vörur frá Mexíkó og pen­ing­arn­arir not­aðir til byggja múr­inn. 

Um leið og hug­mynd­irnar komu fram bloss­aði upp mikil reiði hjá stjórn­völdum í Mexíkó, sem sendur Trump og stjórn hans tón­inn og sögðu aug­ljóst að það yrðu banda­rískir neyt­endur sem þyrftu að borga fyrir vegg­inn með hærra vöru­verði. Vörur frá Mexíkó - þar á meðal ýmsar teg­undir mat­væla, raf­tækja og fara­tækja - væru nauð­syn­legar fyrir Banda­ríkja­markað og því myndi skatt­lagn­ingin skila sér í hærra vöru­verð­i. 

Nokkrum klukku­tímum eftir yfir­lýs­ingu Spicer greindi hann síðan frá því að skatt­ur­inn væri aðeins ein hug­mynd af mörgum sem til greina kæmi, en Trump gengi út frá því að Mexíkó borg­aði fyrir vegg­inn. 

For­seti Mexíkó Enrique Pena Nieto sagði aug­ljóst að Mexíkó vildi ekki borga fyrir vegg­inn og myndi ekki gera það. Hann seg­ist reiðu­bú­inn að efla sam­band Banda­ríkj­anna og Mexíkó með skyn­sömu sam­starfi og við­skipta­samn­ing­um. En Mexíkó láti ekki kúga sig. 

Gríð­ar­legir hags­munir eru í húfi fyrir Mexíkó en útflutn­ingur fyr­ir­tækja lands­ins til Banda­ríkj­anna nemur meira en 300 millj­örðum Banda­ríkja­dala á ári. Þessi 122 millj­óna íbúa þjóð er nær alveg háð mark­aðs­svæði Banda­ríkj­anna og gæti skatt­lagn­ing sem þessi orðið bylm­ings­högg fyrir efna­hag lands­ins. 

Mark Mea­dows, þing­maður Repúblikana, sagði eftir að hug­myndin kom fram frá Spicer í gær að sér­tæk skatt­lagn­ing eins og þessi væri yfir­leitt ekki til góðs, og það væru á end­anum neyt­endur sem þyrftu að greiða fyrir hana.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None