Icelandair heldur áfram að lækka – Niður um tæp fjögur prósent

Björgólfur Jóhannsson er forstjóri Icelandair Group.
Björgólfur Jóhannsson er forstjóri Icelandair Group.
Auglýsing

Verð á hluta­bréfum í Icelandair Group hélt áfram að falla í dag. Við lokun mark­aða hafði hluta­bréfa­verð í félag­inu lækkað um 3,57 pró­sent, í 1.075 mill­ljóna króna við­skipt­u­m. 

Mark­aðsvirði Icelandair lækk­aði um 24 pró­sent í gær eftir að félagið sendi út afkomu­við­vör­un. 

Alls hefur mark­aðsvirði Icelandair lækkað um rúm­lega 110 millj­arða króna frá því í apríl 2016. Mark­aðsvirðið var 80 millj­arðar króna við lok við­skipta í dag. 

Auglýsing

Virði nær allar ann­arra hluta­bréfa í kaup­höll hækk­aði í dag. Eina félagið auk Icelandair sem lækk­aði var HB Grandi, en bréf þess lækk­uðu um 0,73 pró­sent í mjög litlum við­skipt­um. Þá áttu sér ekki stað nein við­skipti með bréf í Öss­ur.

Hæg­ari bók­anir og óvissa í alþjóða­stjórn­málum

Í til­­kynn­ing­unni um versn­andi afkomu sem send var út í gær sagði að að und­an­­förnu hafi orðið breyt­ing á bók­un­­ar­flæði Icelandair til hins verra. „Bók­­anir eru hæg­­ari en gert var ráð fyrir og með­­al­far­­gjöld á mörk­uðum hafa lækkað umfram spár. Þessa þróun má einkum rekja til auk­innar sam­keppni en einnig má leiða líkur að því að óvissa vegna breyt­inga í alþjóða­­stjórn­­­málum hafi áhrif á eft­ir­­spurn.  Að auki hafa gjald­miðlar þró­­ast á óhag­­stæðan máta miðað við fyrra ár, olíu­­verð hefur hækkað og verk­­fall í sjá­v­­­ar­út­­­vegi hefur nei­­kvæð áhrif á frakt­­starf­­semi félags­­ins.“

Björgólfur Jóhanns­son, for­stjóri Icelandair Group, sagði í kvöld­fréttum RÚV í gær að hann hefði áhyggjur af stöð­unni og þess vegna hefði afkomu­við­vör­unin verið send út. Hann sagði þó að hafa þyrfti í huga að 2016 hefði verið mjög gott ár hjá félag­inu og að það væri mjög vel í stakk búið til að takast á við áskor­anir sem það stæði frammi fyr­ir. 

Eign líf­eyr­is­sjóðs hefur fjór­fald­ast

Stærsti ein­staki eig­andi Icelandair er Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna, sem á 14,7 pró­sent hlut í félag­inu. Hann sendi frá sér til­kynn­ingu fyrr í dag þar sem bent var á að meiri­hluti þess hluta­fjár sem sjóð­ur­inn á í Icelandair hafi verið keyptur árið 2010 á geng­inu 2,5, en það er nú 16,2 krónur á hlut. 

Vegið kaup­gengi allra hluta í Icelandair sé 3,7 og miðað við það sé virði hluta­bréf­anna enn meira en fjór­falt kaup­virði þeirra. „Þegar tekið hefur verið til­lit til 1.523 mkr arð­greiðslna er raun­á­vöxtun þess­arar fjár­fest­ingar frá 2010 til dags­ins í dag 32,34%, sem telst mjög góð afkom­a.“

Lestu frétta­skýr­ingu um hvað sé að valda verð­hruni á bréfum Icelandair hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None