Birgitta vill áfengisfrumvarpið í þjóðaratkvæðagreiðslu

Þrír þingmenn Pírata eru flutingsmenn frumvarpsins.

birgitta jónsdóttir - skjáskot RÚV
Auglýsing

Birgitta Jóns­dótt­ir, þing­maður Pírata, vill að nýfram­lagt áfeng­is­frum­varp verði sett í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu sam­hliða sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum á næsta ári. Henni finnst að umræðan eigi frekar að bein­ast að lausnum á öðrum málum en að takast um afvega­leið­ingu frá þeim sem sé „frum­varp Sjálf­stæð­is­flokks­ins um bús í búð­ir“ . Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu Birgittu á Face­book.

Þrír þing­manna Pírata eru á meðal þeirra níu þing­manna úr fjórum flokkum sem hafa lagt fram áfeng­is­frum­varp­ið. Þau eru  Jón Þór Ólafs­­­son, Ásta Guð­rún Helga­dóttir og Viktor Orri Val­­­garðs­­­son. Með þeim eru alls sex þing­menn úr Sjálf­stæð­is­flokki, Bjartri fram­tíð og Við­reisn. 



Frum­varpið var lagt fram í gær. Verði það að lögum verður einka­­leyfi ÁTVR á áfeng­is­­sölu afnumið frá og með næstu ára­­mót­u­m, sala á því heim­iluð í sér­­­versl­un­um, í sér­­­­­rýmum innan versl­anna eða yfir búð­­­ar­­­borð, áfeng­is­aug­lýs­ingar inn­­­lendra aðila heim­il­aðar og leyf­i­­legt verður að aug­lýsa það í inn­­­lendum fjöl­mið­l­u­m. 

Auglýsing

Ásmundur Frið­­riks­­son, þing­­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins, hefur þegar sagt að hann muni greiða atkvæði á móti nýju áfeng­is­frum­varpi og Einar Bynj­ólfs­son, þing­maður Pírata, ætlar mjög lík­lega að láta afstöðu land­læknis móta afstöðu sína gagn­vart frum­varp­in­u. Pawel Bar­toszek, þing­maður Við­reisnar og einn flutn­ings­manna frum­varps­ins, sagði í sam­tali við Kjarn­ann í gær að hann teldi nokkuð öruggan meiri­hluta á þing­inu fyrir mál­inu.

Birgitta leggur til að ein­hver skelli í und­ir­skrift­ar­lista til þing­manna um að skella mál­inu í þjóð­ar­at­kvæði. „Setjum áfeng­is­frum­varpið í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu sam­hliða sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum og ein­beitum okkur að því að ræða lausnir á þeirri stað­reynd að fullt af fólki býr við enn þrengri kjör eftir breyt­ingar á lögum um almanna­trygg­ing­ar. Þeirri stað­reynd að lög um húsa­leigu­bætur hefur skert kjör fjölda lands­manna. Þeirri stað­reynd að við erum í bar­áttu um frek­ari einka­rekstur í heil­brigð­is­kerf­inu. Fullt af börnum fara svöng að sofa. Fullt af fólki hefur ekki efni á að leysa út lyfin sín. Það líður ekki sá dagur sem ég hugsa ekki um það en alltaf skal það vera fyrsta afvega­leið­ingin að ræða enda­laust um sama frum­varp sjálf­stæðs­flokks­ins um bús í búð­ir. Ég legg til að ein­hver skelli í und­ir­skrift­ar­lista til þing­manna um að skella þessu bara í þjóð­ar­at­kvæð­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None