Bréf í HB Granda ruku upp skömmu áður en tilkynning um aukinn loðnukvóta var gefin út

Mikil hækkun á bréfum HB Granda á síðustu dögum hefur vakið athygli á markaði undanfarna daga.

HB Grandi
Auglýsing

Hluta­bréf í HB Granda hafa hækkað tölu­vert síð­ustu daga og rauk gengi bréfa félags­ins upp eftir 8. febr­úar síð­ast­lið­inn. Þá var gengi bréfa félags­ins rúm­lega 25 en á fjórum við­skipta­dögum hækk­aði það um 22,5 pró­sent. Sjó­manna­verk­fall hefur staðið hefur yfir frá 14. des­em­ber með nei­kvæðum afleið­ingum fyrir útgerð­ar­fé­lög og sjáv­ar­út­veg­inn í heild. 

Veltan í þessum við­skiptum var rúm­lega 570 millj­ón­ir, en í dag, eftir að til­kynn­ingin um sext­án­földun á loðnu­kvót­anum kom, hækk­uðu bréfin um 4,13 pró­sent í við­skiptum upp á 410 millj­ón­ir. Ekki liggur fyrir hvaða fjár­festar voru að kaupa bréf á þessum fyrr­nefnda tíma.

Hér sést, af myndi frá Keldunni, hvernig viðskiptin hafa þróast síðustu viðskiptadaga.

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans hefur tölu­vert verið rætt um það á mark­aði í dag, á meðal starfs­manna á fjár­mála­mark­aði, hvort upp­lýs­ingar um þessa miklu aukn­ingu loðnu­kvót­ans, hafi borist til ein­hverra áður en til­kynn­ing kom fram. Slíkt á ekki að ger­ast, en tíma­setn­ing þess­arar skörpu hækk­unar hefur vakið athygli margra.

Til­kynn­ingin var send út í morg­un, og sagði í henni orð­rétt: „Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra hefur á grund­velli til­lagna Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar ákveðið að auka heild­ar­afla íslenskra skipa á loðnu í alls 196.075 þús­und tonn á þess­ari ver­tíð. Áætlað heild­ar­verð­mæti loðnu­afl­ans er um 17 millj­arðar króna.

Auglýsing

Fyrr í vetur hafði íslenskum skipum verið úthlutað rúmum 12 þús­und tonnum þannig að aukn­ingin er rúm­lega sext­án­föld. Sam­kvæmt lögum 116/2016 um stjórn fisk­veiða verður 5,3% afl­ans úthlutað á skipti­mark­aði, alls 10.392 tonn­um.“

Deila sjó­manna og útgerða er enn óleyst, eftir að sjó­menn höfn­uðu gagntil­boði SFS í dag. Reynt verður til þrautar að leysa deil­una á næstu dög­um.

Mark­aðsvirði HB Granda er nú 57 millj­arðar króna. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None