Eyrir selur í Marel fyrir rúma fjóra milljarða króna

Stærsti eigandi Marel hefur selt um tveggja prósenta hlut í félaginu á 4,3 milljarða króna. Kaupandinn er bandarískt fyrirtæki sem verður sjöundi stærsti hluthafi Marel.

Árni Oddur Þórðarson er forstjóri Marel.
Árni Oddur Þórðarson er forstjóri Marel.
Auglýsing

Eyrir Invest, stærsti eig­andi Mar­el, hefur selt rúm­lega tveggja pró­senta hlut í félag­inu. Kaup­and­inn er banda­ríska fyr­ir­tækið MSD Partners L.P. Það greiðir 285 krónur á hlut í við­skipt­un­um, sem er 6,5 pró­sent lægra verð en loka­gengi bréfa í Marel á mark­aði í gær. Alls er kaup­verðið tæp­lega 4,3 millj­arðar króna. Eyrir Invest verður eftir sem áður stærsti ein­staki eig­andi Marel með 27,2 pró­sent hlut í félag­inu. Aðrir stórir eig­endur í félag­inu eru íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir. Mark­aðsvirði Marel við lokun mark­aða í gær var tæp­lega 218 millj­arðar króna.

Stærstu eig­endur Eyris Invest eru Lands­bank­inn og feðgarnir Þórður Magn­ús­son, stjórn­ar­for­maður Eyris Invest, og Árni Oddur Þórð­ar­son, for­stjóri Mar­el. 

Í fram­haldi af við­skipt­unum hefur stjórn Eyris Invest heim­ilað stjórn­endum félags­ins að inn­leysa B-hluti í Eyri Invest. Þeir eru í eigu fjár­festa, m.a. líf­eyr­is­sjóða. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Eyri Invest fer mjög stór hluti af því fé sem losað verður með söl­unni á hlut í Marel í að inn­leysa B-hluti í félag­inu.

Auglýsing

Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris Invest.Í til­kynn­ingu frá Eyri Invest segir að við­skiptin muni auka sveigj­an­leika í rekstri Eyris og styrkja hlut­hafa­hóp Mar­el. Mark­aðsvið­skipti Lands­bank­ans hafi gert Eyri kauptil­boð fyrir hönd MSD Partners, L.P. Með við­skipt­unum verður banda­ríska fyr­ir­tækið sjö­undi stærsti hlut­hafi Mar­el. „Eyrir Invest er lang­tíma­fjár­festir og hefur verið kjöl­festu­fjár­festir í Marel síðan 2005. Marel starfar sam­kvæmt lang­tíma­stefnu sinni og nýleg kaup félags­ins á MPS heppn­uð­ust vel. Eyrir hefur mikla trú á mögu­leikum Marel til áfram­hald­andi vaxtar sem og getu félags­ins til að skila góðri afkomu. Eyrir hyggst áfram vera kjöl­festu­fjár­festir í Mar­el.“

MSD Partners, L.P., sem skráð er hjá SEC í Banda­ríkj­unum sem fjár­mála­ráð­gjafi, var stofnað árið 2009 af eig­endum MSD Capital, L.P. til að gera lok­uðum hópi fjár­festa kleift að taka þátt í fjár­fest­ingum sem MSD Capi­tal skipu­legg­ur. MSD Capi­tal var stofnað árið 1998 til að stýra eignum Mich­ael Dell og fjöl­skyldu hans.

Árið 2016 var besta ár Marel frá upp­hafi. Veltan nam 983 millj­ónum evra en var 819 millj­ónir evra árið áður. Hagn­aður var 76 millj­ónir evra og hækk­aði um þriðj­ung milli ára.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None