Telur enga ástæðu til að útvista starfsemi eftirlitsstofnana

Fjórir ráðherrar hafa svarað fyrirspurnum um útvistun starfsemi eftirlitsstofnana sem heyra undir þá. Óttarr Proppé segir það ekki koma til greina en Þordís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir telur að einstaka útvistun geti verið skynsamleg.

Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra.
Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra.
Auglýsing

Ótt­arr Proppé heil­brigð­is­ráð­herra telur enga ástæðu til þess að útvista starf­semi þeirra eft­ir­lits­stofn­ana sem heyra undir ráðu­neyti hans. Um er að ræða emb­ætti land­lækn­is, Lyfja­stofn­un, Geisla­varnir rík­is­ins og Sjúkra­trygg­ingar Íslands. Ótt­arr segir enn fremur að eng­inn umræddra eft­ir­lits­stofn­ana hafi útvi­stað eft­ir­lits­verk­efnum og að engin könnun hafi farið fram á kostum og göllum þess að útvista starf­sem­ina. Þetta kemur fram í svari heil­brigð­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Óla Björns Kára­son­ar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks og for­manns efna­hags- og við­skipta­nefnd­ar, um eft­ir­lits­stofn­an­ir.

Óli Björn lagði fram fyr­ir­spurnir til allra ráðu­neyta í des­em­ber þar sem hann spurði m.a. um kostnað við rekstur þeirra, starfs­manna­fjölda og hvort til álita hefði komið að útvista starf­semi eft­ir­lits­stofn­an­anna. Fyr­ir­spurn­irnar féllu niður við ráð­herra­skipti þegar ný rík­is­stjórn tók við störfum í jan­ú­ar. Óli Björn lagði þær í kjöl­farið aftur fram. Þrír ráð­herr­ar, til við­bótar við Ótt­arr, hafa svarað fyr­ir­spurnum Óla Björns.

Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, ferða­mála- iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, svar­aði Óla Birni líka í síð­ustu viku. Undir ráðu­neyti hennar heyra mjög stórar eft­ir­lits­stofn­an­ir. Þær eru Sam­keppn­is­eft­ir­lit­ið, Ferða­mála­stofa, Neyt­enda­stofa og Orku­stofn­un. Að auki heyra eft­ir­lits­nefnd fast­eigna­sala og end­ur­skoð­enda­ráð undir ferða­mála-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra en rekstur nefnd­anna er fjár­magn­aður af aðilum starf­andi í grein­unum með greiðslu sér­stakra eft­ir­lits­gjalda. Í svari sínu sagði Þór­dís Kol­brún að útvistun ein­stakra eft­ir­lits­verk­efna geti verið skyn­sam­leg í ákveðnum til­vikum en það þurfi að skoða vel og leggja mat á hvert til­vik fyrir sig. „Slík útvistun eft­ir­lits­verk­efna getur verið skyn­sam­leg í þeim til­vikum þar sem um hreinar hlut­lægar reglur er að ræða þar sem ekki er svig­rúm til hug­lægs mats. Dæmi um útvistun slíkra eft­ir­lits­verk­efna er lög­gild­ing mæli­tækja sem er á ábyrgð Neyt­enda­stofu. Það kann að vera rétt að útvista fleiri slíkum verk­efnum og þá er jafn­framt mik­il­vægt að þeim sé útvi­stað til faggiltra aðila sem hafa þannig sýnt fram á hæfni til að sinna við­kom­andi eft­ir­liti. Í öðrum til­vik­um, þegar eft­ir­lit felur í sér eft­ir­lit á grund­velli mats­kenndra reglna, á útvistun þess síður við og það á enn fremur við þegar um mats­kenndar hátt­ern­is­reglur er að ræða.“

Auglýsing

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, er með tvær eft­ir­lits­stofn­anir sem heyra undir hennar ráðu­neyti. Þær eru Fiski­stofa og Mat­væla­stofn­un. Í svari hennar við fyr­ir­spurn Óla Björns segir að ýmis­konar verk­efnum stofn­anna sé þegar útvi­stað. Þor­gerður Katrín segir að þegar um alger­lega hlut­lægar reglur sé að ræða getur verið rétt að kanna að faggiltir aðilar sinni eft­ir­liti. Slíkt hafi t.d. gengið vel varð­andi bif­reiða­skoð­un, vottun líf­rænnar mat­væla­fram­leiðslu o.fl. „Ráð­herra telur að útvistun eft­ir­lits­verk­efna kunni að vera hag­kvæm og hyggst láta kanna hvort útvista megi verk­efnum í rík­ari mæli, t.d. í sam­bandi við end­ur­skoðun á lögum um MAST. Þó ber að gera grein­ar­mun á eft­ir­liti sem felst í því ann­ars vegar að ákvarða hvort aðilar upp­fylli til­tekin hlut­læg við­mið og hins vegar eft­ir­liti sem byggir á mats­kenndum regl­um, sér­stak­lega þegar um er að ræða mats­kenndar hátt­ern­is­reglur eins og getur komið upp í t.d. dýra­vernd­un­ar­mál­um. Útvistun á síður við í til­fellum þar sem um hug­lægt mat er að ræða.“

Björt Ólafs­dótt­ir, umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra, er með boð­vald yfir bæði Umhverf­is­stofnun og Mann­virkja­stofn­un. Hún segir í svari sínuað heild­stæð könnun á kostum og göllum þess að eft­ir­lits­stofn­anir feli öðrum til­tekið eft­ir­lit hafi ekki verið gerð í umhverf­is- og auð­linda­ráðu­neyt­inu heldur hefur slíkt verið skoðað þegar til­efni hefur verið til við samn­ingu laga­frum­varpa. Heim­ildir til að fela öðrum eft­ir­lit sé þegar að finna víða í þeirri lög­gjöf sem heyrir undir umhverf­is- og auð­linda­ráðu­neytið og ýmsum verk­efnum sé þegar útvi­stað. Í mörgum til­vikum hafi þótt skyn­sam­legt að fela skoð­un­ar­stofum eða öðrum eft­ir­lits­að­ilum til­tekna þætti eft­ir­lits og þá sér­stak­lega í þeim til­vikum sem um umfangs­mikið eft­ir­lit er að ræða eða þegar þörf er á til­tek­inni sér­hæf­ingu, en slíkt sé mats­at­riði hverju sinni. „Beit­ing rétt­ar- og þving­unar­úr­ræða og stjórn­sýslu­við­ur­laga þarf þó ætíð að vera í höndum við­kom­andi stofn­unar eða ann­arra opin­berra eft­ir­lits­að­ila.“

Félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, for­sæt­is­ráð­herra og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra eiga allir eftir að svara fyr­ir­spurn Óla Björns. Engar eft­ir­lits­stofn­anir sem fyr­ir­spurnin nær til falla undir dóms­mála­ráðu­neytið og því svar­aði ráðu­neytið fyr­ir­spurn­inni ekki efn­is­lega.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None