Forsetaembættið hástökkvari í traustsmælingum

Flestir Íslendingar bera mikið traust til Landhelgisgæslunnar og lögreglunnar, en embætti forseta Íslands er hástökkvari í traustsmælingum og er í þriðja sæti. Traust á heilbrigðiskerfið og dómskerfið hefur aukist.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Auglýsing

Traust almenn­ings til emb­ættis for­seta Íslands stór­eykst milli mæl­inga Gallup. 83 pró­sent Íslend­inga bera mikið traust til for­seta Íslands, sem er aukn­ing um 26 pró­sentu­stig milli ára. 

Sem fyrr ber almenn­ingur mest traust til Land­helg­is­gæsl­unn­ar, en 92 pró­sent segj­ast bera mikið traust til gæsl­unn­ar. Traust til lög­regl­unnar hefur auk­ist tölu­vert milli ára, eða 11%, og segj­ast nú 85 pró­sent bera mikið traust til lög­regl­unn­ar. 

For­seti Íslands er í þriðja sæti yfir þær stofn­anir sam­fé­lags­ins sem almenn­ingur ber mikið traust til, en Háskóli Íslands er í fjórða sæti. 76 pró­sent Íslend­inga segj­ast bera mikið traust til HÍ. 

Auglýsing

62 pró­sent bera mikið traust til heil­brigð­is­kerf­is­ins, sem er tölu­verð hækkun milli ára, um 16 pró­sentu­stig. Í fyrra mæld­ist traustið tölu­vert lægra en árin þar á und­an. Sömu sögu er að segja um mæl­ingar á trausti til dóms­kerf­is­ins, sem lækk­uðu tölu­vert í fyrra, en traust á dóms­kerfið hefur auk­ist um ell­efu pró­sentu­stig milli ára. 43 pró­sent segj­ast nú bera mikið traust til þess. 

Þriðj­ungur lands­manna ber mikið traust til Seðla­banka Íslands, fjórum pró­sentu­stigum meira en í fyrra, en 19 pró­sent bera traust til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, þremur pró­sentu­stigum minna en í fyrra. Traust á banka­kerfið mælist lít­il­lega meira en í fyrra, og er í 14 pró­sent­um, lægst allra stofn­ana. 

Traust til Alþingis hefur auk­ist um fimm pró­sentu­stig milli ára, en 22 pró­sent Íslend­inga segj­ast bera mikið traust til lög­gjaf­ar­sam­kom­unn­ar. Alþingi er komið upp fyrir borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur, sem stendur í stað með 19% traust. 

Af öðrum stofn­unum sam­fé­lags­ins, sem mældar voru, hefur umboðs­maður Alþingis hefur mikið traust 51% þjóð­ar­innar og rík­is­sak­sókn­ari hefur mikið traust hjá 50%. 48 pró­sent treysta rík­is­sátta­semj­ara mikið og traust til emb­ættis umboðs­manns skuld­ara er 22 pró­sent.

Spurt var hversu mikið eða lítið traust fólk bar til við­kom­andi stofn­ana. Könn­unin var hluti af net­könnun sem Gallup gerði dag­ana 9. til 21. febr­ú­ar, heild­ar­úr­tak var 1.411 manns og þátt­töku­hlut­fallið 59,8 pró­sent. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None