Nýr forstjóri ráðinn yfir GAMMA

Gísli Hauksson, sem stýrt hefur GAMMA árum saman, verður stjórnarformaður fyrirtækisins.

Valdimar ármann
Auglýsing

Valdi­mar Ármann hefur tekur við starfi for­stjóra GAMMA Capi­tal Mana­gement á Íslandi á morg­un. Gísli Hauks­son, sem er annar stofn­andi GAMMA og sem hefur verið for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins í níu ár, tekur við starfi stjórn­ar­for­manns GAMMA. Hann stýra upp­bygg­ingu starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í New York og London, þar sem hann býr, auk þess sem hann mun móta stefnu GAMMA á Ísland­i. Valdi­mar Ármann hefur gegnt starfi fram­kvæmda­stjóra sjóða hjá GAMMA und­an­farin ár og var meðal fyrstu starfs­manna félags­ins.

 

Sam­hliða þessu hefur Ingvi Hrafn Ósk­ars­son störf hjá GAMMA sem fram­kvæmda­stjóri sér­hæfðra fjár­fest­inga og fyr­ir­tækja­verk­efna. Guð­mundur Björns­son, sem er fram­kvæmda­stjóri rekstr­ar­sviðs, fjár­mála og áhættu­stýr­ingar hjá GAMMA, verður stað­geng­ill for­stjóra. Agnar Tómas Möller verður fram­kvæmda­stjóri sjóða. Um leið lætur Lýður Þór Þor­geirs­son af störfum hjá GAMMA. 

Auglýsing

 

Í til­kynn­ingu vegna þessa segir Gísli Hauks­son að skipu­lags­breyt­ing­arnar nái fram tveimur mik­il­vægum mark­miðum í rekstri GAMMA. „Skerpt er enn betur á ábyrgð og verk­efnum stjórn­enda­teym­is­ins á Íslandi með Valdi­mar Ármann í for­ystu mjög öfl­ugs hóps ein­stak­linga. Starfs­menn og sjóðs­stjórar GAMMA hafa náð fram­úr­skar­andi árangri und­an­farin ár með frá­bærri ávöxtun sjóða og fyr­ir­tækja­verk­efna. Valdi­mar hefur gegnt lyk­il­hlut­verki í þeirri þróun og býr yfir yfir­grips­mik­illi þekk­ingu og mik­illi reynslu af fjár­mála­mark­að­i.“

GAMMA Capi­tal Mana­gement er nú með rúm­lega 120 millj­arða króna í stýr­ingu. Við­skipta­vinir félags­ins eru stofn­ana­fjár­festar eins og líf­eyr­is­sjóðir og trygg­inga­fé­lög, efna­meiri ein­stak­lingar og banka­stofn­an­ir, inn­lendar og erlend­ar. Þá eru sjóðir í rekstri hjá GAMMA meðal stærstu fjár­festa á íslenskum fast­eigna­mark­aði og reka meðal ann­ars yfir 1.250 íbúðir ásamt því að standa að bygg­ingu og þróun hátt í 1.800 íbúða. Fast­eigna­starf­semi sjóða í rekstri hjá GAMMA er rekin af félög­unum Almenna leigu­fé­lag­inu, Upp­hafi fast­eigna­fé­lagi og Heild fast­eigna­fé­lagi. Sömu­leiðis eru stærstu fyr­ir­tækja­skulda­bréfa­sjóðir á Íslandi í rekstri hjá GAMMA. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None