Kallað eftir afnámi hafta og líka tafarlausu inngripi til að veikja krónuna

Það er óhætt að segja að gengi krónunnar sé enn einu sinni með kastljósið á sér á fjármagnsmarkaði.

Evrur
Auglýsing

Óhætt er að segja að styrk­ing krón­unnar upp á síðkastið hafi kallað fram nokkuð sterk við­brögð, bæði á mark­aði og einnig hjá stjórn­mála­mönn­um. Aug­ljósir hags­munir eru fyrir því hjá útflutn­ings­hlið hag­kerf­is­ins að krónan styrk­ist ekki of hratt og mik­ið, og er hún þegar farin að valdi tölu­verðum áhyggj­u­m. 

Rekst­ur­inn verður þá erf­iður og í versta falli getur hann siglt í strand.

Sér­stak­lega er staðan við­kvæm hjá mörgum tækni- og sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum sem hafa kostnað í krónum og tekjur í erlendri mynt. Launa­kostn­aður hefur farið hækk­andi og styrk­ing krón­unnar hefur leitt til þess að minna kemur í kass­ann að lok­um. 

Auglýsing

Banda­ríkja­dalur kostar nú 106 krón­ur, evra 112 krónur og pundið 130. Ekki er nema eitt og hálft ár síðan staðan var allt önn­ur. Banda­ríkja­dalur kost­aði þá 136 krón­ur, evran tæp­lega 150 og pundið 206. Mest af útflutn­ingi Ísland er inn á þessu þrjú mynt­svæði, svo sveiflan er tölu­vert mik­il. 

Einn þeirra sem talað hefur fyrir því að nú sé kjörið að afnema höftin strax, og vinna með því á móti þessu styrk­ing­ar­ferli, er Sig­urður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri eigna­stýr­ingar hjá Kviku. Í grein í Frétta­blað­inu í vik­unni segir hann að allar for­sendur séu nú fyrir hendi til að gera þetta. 

Í gær lýstu þing­menn áhyggjum sínum af gengi krón­unn­ar, og sagði Stein­grímur J. Sig­fús­son, þing­maður VG, að nauð­syn­legt væri að grípa inn í þessa þróun og halda gengi krón­unnar tölu­vert veik­ara en það er nú. Ann­ars myndi fara illa hjá mörgum fyr­ir­tækj­um. Teitur Björn Ein­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tók undir þetta og lýsti áhyggjum sín­um. 

Eins og sést á þessari mynd þá hefur utanríkisverslun Íslands tekið stakkaskiptum með vexti í ferðaþjónustu.Erfitt er að segja til um hvernig gengi krón­unnar um þró­ast á næstu miss­erum, en margt bendir þó til þess að það geti styrkst nokk­uð. Mikil gjald­eyr­is­inn­streymi hefur verið inn í landið vegna vaxtar í ferða­þjón­ust­unni, en á sama tíma hefur skulda­staða þjóð­ar­bússin í útlöndum sjaldan eða aldrei verið betri. Þá hafa bank­arnir verið að stíga frek­ari skref inn í fjár­magns­mark­aði erlend­is, og þannig aflað fjár fyrir fjár­mála­kerf­ið. 

Allt hefur þetta ýtt undir styrk­ingu krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­mynt­um, en vandi er að spá fyrir um hvar jafn­vægis­p­unkt­ur­inn geti verið til fram­tíðar litið þegar að þessum málum kem­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None