Dómsmálaráðherra sér engan tilgang í því að ríkið reki fjölmiðil

Ítarlegt viðtal er við Sigríði Andersen í Fréttablaðinu í dag.

Sigríður Andersen er dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar.
Sigríður Andersen er dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar.
Auglýsing

Sig­ríður And­er­sen, dóms­mála­ráð­herra, seg­ist ekki sjá neinn til­gang í því að íslenska ríkið reki fjöl­miðil eins og Rík­is­út­varp­ið. 

Þetta kemur fram í við­tali við hana í Frétta­blað­inu. „Með því er ég ekki endi­lega að ýta því út af borð­inu að menn ­geti styrkt íslenska dag­skrár­gerð og annað – en það er hægt eftir öðrum ­leið­um. Mér finnst ein­fald­lega frá­­­leitt að ríkið reki fjöl­mið­il, með­ margar rásir og mikil útgjöld. Ég ­geri enga kröfu til þess að frétta­stof­a ­rík­is­ins haldi hlut­leysi[...] Á frétta­stofu ­rík­is­út­varps­ins er bara fólk að vinna, sem hefur sínar skoð­anir eins og annað fólk. Skoð­anir reka mann á­fram. Von­andi starfar fólk þar fag­lega, en kröfu um hlut­leysi held ég að sé mjög erfitt að halda til streit­u,“ ­segir Sig­ríður í við­tal­in­u. 

Hún segir að hugs­an­lega hafi ein­hvern tíma hafa ver­ið rök fyrir fjöl­miðli í eigu rík­is­ins en sá tími sé löngu lið­inn. „Kannski var allt í lagi að halda þessu úti þegar það var heil­mik­ið verk að kaupa tæki til útsend­ing­ar. Sú rök eru ekki lengur til stað­ar­, það getur hver sem er gert þetta og þar fyrir utan er fullt af fjöl­miðl­u­m ­starf­rækt í land­inu. Það er ekki eins og þetta ágæta fólk sem vinnur á RÚV myndi hverfa þótt ríkið mynd­i hætta að reka mið­il­inn.“ 

Auglýsing

Í við­tal­inu er spurt hvort ekki sé full­langt gengið að vilja ­leggja RÚV nið­ur? Stofn­unin hafi eftir allt saman lög­bundið hlut­verk og geymi vænan hluta menn­ing­ar­arfs ­þjóð­ar­inn­ar. „Í póli­tískum raun­veru­leika, þá ætla ég ekki að berjast ­fyrir því að RÚV verði lagt niður eða ­selt, en það gæti vel komið til greina að tak­marka rekst­ur­inn við eins og eina útvarps­stöð. Það er mögu­leik­i að taka stofn­un­ina af aug­lýs­inga­mark­að­i en þá kemur þessi krafa um meira fjár­magn frá rík­inu. Mér­ finnst þessi umræða raunar ver­a ­sér­stök, því það er ekki hægt að vera enda­laust í búta­saumi á ónýt­u ­kerfi. Þetta er sam­keppn­is­rekstur og ­ríkið á ekki heima í slíku umhverf­i,“ segir Sig­ríð­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None