Finnst koma til greina að setja þak á atkvæðisrétt lífeyrissjóða

Bjarna Benediktssyni finnst koma til greina að setja gólf á erlendar fjárfestingar lífeyrissjóða og á atkvæðisrétt þeirra í félögum til að koma í veg fyrir samþjöppun á valdi.

Bjarni Benediktsson
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra segir að sér finn­ist það koma til greina að setja gólf á erlendar fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóða. Það myndi þýða að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, sem áttu 3.509 millj­arða króna í hreinni eign um síð­ustu ára­mót, yrðu skikk­aðir með lögum til að fjár­festa ákveðin hluta af eignum sínum utan íslensks hag­kerf­is. Þetta kemur fram í við­tali við Bjarna í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar segir for­sæt­is­ráð­herra einnig að vegna sam­þjöpp­unar á valdi sem geti fylgt fjár­fest­ingum líf­eyr­is­sjóð­anna í atvinnu­líf­inu finn­ist honum að taka þurfi til skoð­unar hvort þeir eigi að geta farið með atkvæð­is­rétt sem fylgja stórum eign­ar­hlutum „eða hvort setja beri þak á slíkan atkvæð­is­rétt.“ Það myndi þá þýða að líf­eyr­is­sjóðir myndu ekki fá atkvæð­is­rétt í sam­ræmi eign sína í skráðum íslenskum félögum en aðrir minni fjár­festar fá atkvæð­is­rétt umfram eign sína. Bjarni segir þó að engar ákvarð­anir verði teknar fyrr en að lok­inni úttekt á mál­unum sem hann ætli að hrinda í fram­kvæmd fljót­lega.

Hefur áhyggjur af fyr­ir­ferð líf­eyr­is­sjóða

Bjarni segir í við­tal­inu að hann hafi miklar áhyggjur af því að líf­eyr­is­sjóðir séu orðnir jafn fyr­ir­ferð­ar­miklir í íslensku atvinnu­lífi og þeir eru í dag. Sjóð­irnir eiga beint eða óbeint yfir 50 pró­sent skráðra hluta­bréfa og eru mjög fyr­ir­ferða­miklir í óskráðum félögum og ýmiss konar sjóð­um. Þeir séu í raun og veru leið­andi og ber­andi fjár­festar víð­ast þar sem eitt­hvað sé að ger­ast nýtt í íslensku atvinnu­lífi í dag.

Auglýsing

„Þegar við þetta bæt­ist að líf­eyr­is­sjóð­irnir eru að skoða fjár­fest­ingar inni í fjár­mála­fyr­ir­tækjum þá hlýtur maður að staldra við og spyrja hvort þetta sé gott fyrir líf­eyr­is­sjóð­ina sjálfa sem fjár­festa og fyrir heil­brigt efna­hags- og atvinnu­líf. Þetta þéttriðna net líf­eyr­is­sjóða á Íslandi felur sömu­leiðis í sér hættu, ekki síst vegna þess að atvinnu­lífið á Íslandi er jafn fábreytt og raun ber vitni. Við erum ekki með nema tvö til fjögur ber­andi fyr­ir­tæki á hverju stóra svið­inu, sama hvort þú horfir á trygg­ing­ar, fjár­mál, olíu­fé­lög, smá­sölu­versl­un, fjöl­miðl­un, fjar­skipti og þess vegna sam­göng­ur. Þetta getur verið nokkuð eitruð blanda.“

For­sæt­is­ráð­herra ætlar að hrinda af stað úttekt á þeim hættum sem gætu leynst í kerf­inu við þær aðstæður sem eru í dag til fram­tíð­ar. „Ég held að það sé mjög mik­il­vægt, bæði líf­eyr­is­sjóð­anna sjálfra vegna og fyrir heil­brigða og góða upp­bygg­ingu atvinnu­lífs­ins til lengri tíma. Þessa vinnu mun ég setja af stað áður en langt um líð­ur. Hvort komi til laga­breyt­inga í kjöl­far þeirrar vinnu ætla ég ekki að segja neitt til um nú, áður en vinnan er haf­in. Það sem þarf m.a. að skoða er greiðslu­flæði líf­eyr­is­sjóð­anna inn í fram­tíð­ina með hlið­sjón af ald­urs­sam­setn­ingu þjóð­ar­innar og við þurfum að velta fyrir okkur þáttum sem varða efna­hags­lífið í heild, eins og því að hvaða marki er æski­legt að auka erlendar fjár­fest­ingar sjóð­anna.“

Gólf kemur til greina

Bjarna finnst koma til greina að setja gólf á erlendar fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóð­anna. „Vegna sam­þjöpp­unar á valdi, sem getur fylgt fjár­fest­ingum líf­eyr­is­sjóð­anna inn í atvinnu­líf­ið, finnst mér þurfa að taka til skoð­unar þætti eins og þann hvort þeir eigi að geta farið með atkvæð­is­rétt, sem fylgir stórum eign­ar­hlut­um, eða hvort setja beri þak á slíkan atkvæð­is­rétt. Ég von­ast til þess að við getum tekið yfir­veg­aðar ákvarð­anir um fram­hald­ið, að svona úttekt lok­inn­i.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None