Jón Ásgeir kominn með prókúru í eiganda 365

Jón Ásgeir Jóhannesson er kominn með prókúru í félagi sem á öll B-hlutabréf í 365 miðlum. Félagið er eigu stærsta eiganda fjölmiðlarisans, félags sem skráð er í Lúxemborg. Kaup Vodafone á hluta af 365 eru enn ófrágengin.

Jón Ásgeir Jóhannesson.
Jón Ásgeir Jóhannesson.
Auglýsing



Jón Ásgeir Jóhann­es­son er kom­inn með pró­kúru í félag­inu Apogee ehf. Á heima­síðu Fjöl­miðla­nefndar er félagið sagt vera í eigu félaga á vegum Ingi­bjargar Pálma­dótt­ur, eig­in­konu hans. Sam­kvæmt síð­asta birta árs­reikn­ingi er eig­andi Apogee er Moon Capi­tal S.a.r.l., félags skráð í Lúx­em­borg,  sem er líka stærsti ein­staki eig­andi A-hluta í 365 miðlum með 51,8 pró­sent eign­ar­hlut. Apogee á síðan allt B-hlutafé í 365 miðl­um, sem er stærsta einka­rekna fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins.

Þessi breyt­ing varð á stjórn­ar­fundi Apogee 21. febr­úar síð­ast­lið­inn, sam­kvæmt breyttri skrán­ingu sem hægt er að nálg­ast í gagna­grunni Credit­info.

Jón Ásgeir, sem er fyrr­ver­andi aðal­eig­andi 365 miðla, hefur ekki haft form­lega stöðu innan fyr­ir­tæk­is­ins um ára­bil. Við­mæl­endur Kjarn­ans sem starfa innan þess segja hins vegar að hann stýri öllu því sem hann vill stýra í dag­legum rekstri 365 miðla og sé með mikla við­veru á skrif­stofum fyr­ir­tæk­is­ins.

Auglýsing

Hann er einn þeirrra sem er ákærður í Aur­um-­mál­inusvo­kall­aða sem tekið var aftur fyrir í hér­aðs­dómi í lok síð­asta árs. Þar var Jón Ásgeir sýkn­aður ásamt Bjarna Jóhann­essyni, fyrr­ver­andi við­skipta­stjóra hjá Glitni, en Lárus Weld­ing, fyrr­ver­andi banka­stjóri Glitn­is, og  Magnús Arn­ar Ásgríms­­­son, fyrr­ver­andi fram­­­kvæmda­­­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs bank­ans, sak­felld­ir. Mál­inu var áfrýjað til Hæsta­réttar að und­an­skildu máli Bjarna, og er því ekki lok­ið.

Vilja ekki svara spurn­ingum um Panama­fé­lag

Í ágúst í fyrra var til­kynnt um að Fjar­skipti, móð­ur­fé­lag Voda­fone, ætl­aði að kaupa ljós­vaka- og fjar­skipta­hluta 365 miðla. Upp­haf­lega stóð til að greiða sam­tals um átta millj­arða króna fyrir eign­irnar með reiðu­fé, útgáfu hluta­bréfa í Fjar­skiptum og yfir­töku vaxta­ber­andi skulda 365 miðla. Kaupin hafa dreg­ist mjög á lang­inn og í des­em­ber var til­kynnt að verð­mið­inn hefði verið lækk­aður um 1,2 millj­arða króna. Í árs­reikn­ingi Fjar­skipta, sem er skráð á mark­að, kom fram að vonir séu bundnar við að gerð kaup­samn­ings ljúki fyrir lok mars­mán­að­ar. Verði af kaup­unum verða félög í eigu Ingi­bjarg­ar, m.a. Moon Capi­tal S.a.r.l., stærsti einka­fjár­festir­inn í Fjar­skiptum og gætu í krafti þess kraf­ist stjórn­ar­sæt­is, jafn­vel stjórn­ar­for­mennsku í félag­inu. Sá einka­fjár­festir sem nú er stærsti eig­andi Fjar­skipta, utan líf­eyr­is­sjóða og fjár­fest­ing­ar­sjóða, er félag í eigu Heið­ars Guð­jóns­son­ar, stjórn­ar­for­manns félags­ins.

Í Panama­skjöl­unum kom fram að félag í eigu Ingi­bjargar Pálma­dóttur hafi fjár­magnað fjölda­mörg verk­efni í Bret­landi og á Íslandi eftir hrun. Jón Ásgeir var skráður með pró­kúru í félag­inu, sem heitir Guru Invest, og teng­ist mörgum verk­efn­anna sem það hefur fjár­magn­að.

Kjarn­inn sendi fyr­ir­spurn til þeirra vegna umfjöll­unar um Guru Invest og umsvif þess. Á meðal þeirra svara sem óskað var eftir voru upp­lýs­ingar um hvaðan þeir fjár­munir sem vistaðir eru í Guru Invest í Panama hafi kom­ið, hverjar eignir félags­ins eru og hvort að fé úr Guru Invest hafi runnið til félaga eða ein­stak­linga á Íslandi. Þar var einnig spurt hvort eignir Guru Invest hafi verið á meðal þeirra eigna sem til­greindar voru í umfangs­miklum skulda­upp­gjörum þeirra við kröfu­hafa á Íslandi sem fram hafa farið á und­an­förnum árum og beðið um upp­lýs­ingar um hvar Guru Invest greiðir skatta og gjöld. Þá var einnig spurt af hverju félagið væri skráð með heim­il­is­festi á Panama.

Þau vildu ekki veita efn­is­leg svör.

Var eig­andi árum saman

Það félag sem í dag heitir 365 miðlar hét einu Rauð­­sól. Það keypti alla fjöl­miðla „gamla“ 365 í nóv­­em­ber 2008 á 1,5 millj­­arð króna og með yfir­­­töku skulda. Gamla 365 ehf., sem var end­­­­ur­­­­nefnt Íslensk afþrey­ing ehf., fór í þrot og kröf­u­hafar þess töp­uðu 3,7 millj­­­­örðum króna. Á meðal kröf­u­hafa þess voru íslenskir líf­eyr­is­­sjóðir og rík­­is­­bank­inn Lands­­banki Íslands. Eig­andi Rauð­sólar var upp­haf­lega Jón Ásgeir Jóhann­es­son. Hann og tengdir aðilar höfðu líka átt stærstan eign­ar­hlut í „gamla“ 365.

Þeir stjórn­­­ar­­menn gamla 365 sem sam­­þykktu kaupin sam­þykktu síðar að greiða sjóði í eigu Lands­­banka Íslands óupp­­­gefna upp­­hæð fyrir að falla frá skaða­­bóta­­máli á hendur sér vegna þessa. Í mál­inu höfðu dóm­kvaddir mats­­­menn kom­ist að þeirri nið­­­ur­­­stöðu að gamla 365 ehf. hefði verið ógjald­­­fært á þeim tíma sem fjöl­mið­l­­­arnir voru seldir til Rauð­­sólar og því hefði átt að gefa félagið upp til gjald­­­þrota­­­skipta sam­­­kvæmt lög­­­­­um.

365 miðlar töp­uðu 1,4 millj­­arði króna á árinu 2014 og ef það hefði fært skatta­skuld sem það hefur þegar verið dæmt til að greiða í rekstr­­ar­­reikn­ing 2015 hefði tapið verið 350 millj­­ónir króna það árið. 365 skuld­aði tíu millj­­arða króna í lok árs 2015 og þær skuldir hafa farið hratt vax­andi, sér­­stak­­lega eftir að félagið var end­­ur­fjár­­­magnað hjá Arion banka haustið 2015.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None