VR krefst þess að DV verði sett í þrot

Björn Ingi Hrafnsson er einn stærstu eigenda Pressunar ehf. sem á ríflega 86% hlut í DV.
Björn Ingi Hrafnsson er einn stærstu eigenda Pressunar ehf. sem á ríflega 86% hlut í DV.
Auglýsing

VR hefur kraf­ist þess að DV ehf., útgáfu­fé­lag DV, verð­i ­tekið til gjald­þrota­skipta. Erf­ið­lega hefur reynst að inn­heimta kröfur af ­út­gáfu­fé­lag­inu því áður hafði Líf­eyr­is­sjóð­ur­ versl­un­ar­manna gert ár­ang­urs­laust fjár­nám þar. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag. 

Árang­urs­laust fjár­nám hefur þau rétt­ar­á­hrif sam­kvæmt lögum að í þrjá mán­uði á eftir geta allir kröfu­haf­ar DV ehf. farið fram á að félag­ið verði tekið til gjald­þrota­skipta sam­kvæmt lögum um gjald­þrota­skipt­i. „Ég er með launa­kröfu fyrir einn ­fyrr­ver­andi starfs­mann DV. Við erum búin að senda út inn­heimtu­bréf og við erum í við­ræðum við þá um að leysa þetta,“ segir Guð­mundur B. Ólafs­son sem rek­ur ­málið fyrir VR í við­tali við Frétta­blað­ið.

Ólafur Haukur Hákon­ar­son aug­lýs­inga­sölu­mað­ur­ hætti störf­um hjá DV síð­asta sum­ar. Hann seg­ir að krafa sín nemi rétt tæp­lega millj­ón, en DV braut á hon­um, meðal ann­ars með því að halda eftir með­lags­greiðslum hans. „Það sem var kveikjan að því að ég hætti hjá þeim var að ég var ­með stefnu frá Inn­heimtu­stofn­un sveit­ar­fé­lag­anna þar sem kom í ljós að ég átti að skulda þeim ein­hvers ­staðar á milli 6-700 þús­und krón­ur í með­lög en varð mjög undr­andi af því að með­lög voru alltaf dregin af ­laun­unum mín­um. En það kom í ljós að þau skil­uðu sér ekki til Inn­heimtu­stofn­un­ar­inn­ar og ég gat sýnt fram á það að þetta hafði alltaf ver­ið ­dregið af laun­unum mín­um. Þannig að þeir færðu kröf­una bara yfir á D­V,“ segir Ólafur Haukur í við­tali við Frétta­blað­ið.

Auglýsing

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vef Fjöl­miðla­nefndar er Pressan ehf. stærsti eig­andi DV með ríf­lega 86 pró­sent hlut, en stærstu eig­endur Pressunnar eru Björn Ingi Hrafns­son og Arnar Ægis­son.



Upp­lýs­ingar um eign­ar­hald á DV, eins og það birt­ist á vef Fjömiðl­ar­nefnd­ar, eru hér á eft­ir.

Pressan ehf., 86,38%

Guð­berg ehf.,  í eigu Berg­lindar Jóns­dóttur o.fl., 7,09%

Gagn­sæi ehf., í eig­u ­Arev hf.,  4,98%

Meiri­háttar ehf, í eigu Sig­ur­dórs Sig­urðs­son­ar, 1,10%

VB Bakki ehf., í eigu Þór­unnar Guð­munds­dótt­ur, 0,45%

Eign­ar­hald Pressunnar ehf:

Kringlu­turn­inn, 28%, eig­endur Björn Ingi Hrafns­son, 50%, og Arnar Ægis­son, 50%

Kringlu­eignir ehf., 31,85% eig­andi Björn Ingi Hrafns­son

AB 11 ehf., 22,15%, eig­endur Björn Ingi Hrafns­son, 50%, og Arnar Ægis­son, 50%

Steinn Kári Ragn­ars­son fram­kvæmda­stjóri, 10%

Jakob Hrafns­son fram­kvæmda­stjóri, 8%.



Á dög­unum var svo frá því greint að Pressan ehf. hefði eign­ast Birt­ing. Ekk­ert hefur komið fram um hvernig félagið greiddi fyrir hlut­inn, en í til­kynn­ingu segir að hlut­hafar Birt­ings, þar helst Hreinn Lofts­son lög­mað­ur, muni fá hlut í Press­unni í tengslum við þessi við­skipti. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vef Fjöl­miðla­nefnd­ar, hafa ekki verið sendar inn neinar til­kynn­ingar um breyt­ingar á hlut­haf­alist­an­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None