FME segir engar upplýsingar um leka í Borgunarmáli

Fjármálaeftirlitið gerir athugasemd við frétt Morgunblaðsins um upplýsingaleka í Borgunarmáli og segir að fyrir liggi að héraðssaksóknari hafi upplýst fjölmiðla um málið.

VISA Borgun
Auglýsing

Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) segir engar vís­bend­ingar til staðar um að upp­lýs­ingar um kæru til hér­að­sak­sókn­ara í Borg­un­ar­mál­inu hafi lekið frá emb­ætt­inu. Í Morg­un­blað­inu í morgun hafi verið látið að því liggja að „upp­lýs­inga­leki hafi átt sér stað vegna fram­an­greindrar vís­un­ar. Fyrir liggur að hér­aðs­sak­sókn­ari hefur upp­lýst fjöl­miðla um málið og engar vís­bend­ingar um upp­lýs­inga­leka eru fyr­ir­liggj­and­i.“ Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá eft­ir­lit­inu.

Í Morg­un­blað­inu í morgun var haft eftir Erlendi Magn­ús­syni, stjórn­ar­for­manni Borg­un­ar, að það væri und­ar­leg stjórn­sýsla að hálfu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins að upp­lýsa Borgun ekki um að máli fyr­ir­tæk­is­ins, sem hafði verið til athug­unar hjá eft­ir­lit­inu, hefði verið vísað til hér­aðs­sak­sókn­ara vegna gruns um sak­næmt athæfi. Þessu hafnar Fjár­mála­eft­ir­litið og tel­ur þvert á móti eðli­lega stjórn­sýslu að við­tak­andi ábend­ingar eða vís­unar meti hvernig eðli­legt er að upp­lýsa almenn­ing og hlut­að­eig­andi um til­vist eða efni máls. Einnig sé rétt að benda á í þessu sam­hengi að stjórn­sýslu­lög gilda almennt ekki um rann­sókn saka­mála.

Kjarn­inn greindi frá því í febr­úar að Fjár­­­­­­­mála­eft­ir­litið hefði kom­ist að þeirri nið­­­­­ur­­­­­stöðu, eftir athugun sem stóð í um níu mán­uði, að fram­­­­­kvæmd, verk­lag og eft­ir­lit Borg­unar í tengslum við aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­­­­­­­­­mögnun hryðju­verka vegna færslu­hirð­ingar félags­­­­­ins erlendis upp­­­­­­­­­fylli ekki með við­un­andi hætti þær megin kröfur sem gerðar eru í lög­­­­­­­­­um. Borgun voru gefnir tveir mán­uðir til að ljúka úrbótum vegna athuga­­­­­semda eft­ir­lits­ins. Auk þess var mál­inu vísað til emb­ættis hér­­aðs­sak­­sókn­­ara síð­­ast­lið­inn mán­u­dag, þar sem grunur leikur á um sak­­næmt athæfi sem við liggur refs­ing sam­­kvæmt lög­­­um.

Auglýsing

Borgun hefur verið að færa skarpt út kví­­arnar á öðrum mörk­uðum en þeim íslenska á síð­­­ustu árum. Á meðal þeirra landa sem fyr­ir­tækið hefur aukið mjög hlut­­deild sína í færslu­hirð­ingu eru Bret­land, Ung­verja­land og Tékk­land. Kjarn­inn hefur fengið það stað­­fest að á meðal þeirra við­­skipta­vina sem Borgun hefur tekið að sér að þjón­usta séu aðilar sem selji aðgang að klámi, fjár­­hætt­u­­spilum eða selji lyf á net­inu. Allt eru þetta athæfi sem er ólög­­legt að stunda á Íslandi en Borgun er hins vegar frjálst að veita stoð­­þjón­­ustu gagn­vart í öðrum lönd­um, að ákveðnum skil­yrðum upp­­­fyllt­­um. Slíkum við­­skiptum fylgir þó mikil orð­­spor­s­á­hætta.

Borgun sendi frá sér yfir­­lýs­ingu á mið­viku­dag í síð­ustu viku þar sem fyr­ir­tækið segir að það telji sig hafa farið að lögum og fram­­kvæmt áreið­an­­leikakann­­anir á við­­skipta­vinum sam­­kvæmt verk­lags­hefð á Evr­­ópska efna­hags­­svæð­inu. Þar hafn­aði Borgun því einnig að stór­­aukin umsvif Borg­unar í öðrum löndum tengd­ust vafasömum við­­skiptum sem önnur korta­­fyr­ir­tæki vildu ekki sinna. Í yfir­­lýs­ing­unni var því hins vegar ekki hafnað að Borgun hafi tekið að sér slík við­­skipti, heldur ein­ungis sagt að hin stór­auknu umsvif væru ekki vegna þeirra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None