Samherji vill fá afhentar upplýsingar úr skýrslu Lagastofnunar

Tekist er á um aðgengi að upplýsingum um rannsóknir og aðgerðir gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands gagnvart Samherja.

Þorsteinn Már Baldursson, forstjóri Samherja.
Þorsteinn Már Baldursson, forstjóri Samherja.
Auglýsing

Tekið er fyrir mál Sam­herja gegn Seðla­banka Íslands í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag, en fyr­ir­tækið krefst þess með áskorun fyrir dómi að fá afhentar upp­lýs­ingar úr skýrslu Laga­stofn­unar Háskóla Íslands um mál­efni sem snúa að rann­sóknum og aðgerðum Seðla­banka Íslands gagn­vart fyr­ir­tæk­inu.

Í sept­em­ber 2015 felldi emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara niður mál gegn Þor­steini Má Bald­vins­syni, for­stjóra Sam­herja, og þremur öðrum lyk­il­starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins, sem Seðla­banki Íslands hafði vísað til emb­ætt­is­ins. Seðla­bank­inn vís­aði mál­inu til emb­ætt­is­ins á grund­velli þess að þeir hefðu brotið gegn lögum um gjald­eyr­is­mál. 

Málið hófst með hús­leitum í starfs­stöð Sam­herja á Akur­eyri og í Reykja­vík, í mars 2012. 

Auglýsing

Eftir að mál­inu lauk, hefur Sam­herji sótt á Seðla­bank­ann og hefur Þor­steinn Már ítrekað sagt, að ein­hver verði að axla ábyrgð vegna þess­ara aðgerða gegn Sam­herja, þar sem fyr­ir­tækið hefði ekki brotið gegn lög­um, eins og nú hefur verið stað­fest. 

Þor­steinn Már hefur þegar kært tvo yfir­menn í Seðla­bank­anum vegna máls­ins til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þau Arnór Sig­hvats­son aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra og Ingi­björgu Guð­bjarts­dótt­ur, fram­kvæmda­stjóra gjald­eyr­is­eft­ir­lits bank­ans.

Byggir kæran meðal ann­ars á því að þau hafi ekki aðeins komið „rang­­færsl­um, vill­andi mála­til­­bún­­aði og ófull­nægj­andi upp­­lýs­ing­um“ til leiðar heldur einnig kom­ist undan því að koma „full­nægj­andi upp­­lýs­ingum til emb­ættis sér­­staks sak­­sókn­­ara við rann­­sókn í saka­­máli emb­ætt­is­ins“.

Í svari Garð­ars Gísla­son­ar, lög­manns Sam­herja, við fyr­ir­spurn vegna fyr­ir­tök­unnar sem er á dag­skrá dóm­stóla í dag, segir Garðar að hann hafi fundið sig knú­inn til að leita til dóm­stóla, til að nálg­ast fyrr­nefnd gögn, það er upp­lýs­ingar úr skýrslu Laga­stofn­unar Háskóla Íslands.

Ég hef hins vegar ítrekað krafið Seðla­bank­ann um afrit af skýrsl­unni, án árang­urs. Fékk synjun um að fá hana í heild á þeim for­sendum að í henni væri að finna upp­lýs­ingar sem háðar væru þagn­ar­skyldu. Var á hinn bóg­inn ját­aður réttur til að fá aðgang að þeim hlutum skýrsl­unnar sem geymdu upp­lýs­ingar um umbjóð­anda minn (Sam­herj­a). Var mér kynnt að bank­inn myndi fara yfir skýrsl­una með það í huga – og lofað að ég skyldi fá þann útdrátt send­an. Ekk­ert hefur hins vegar borist – þótt liðnir séu mán­uð­ir. Því varð úr að ég lagði fram áskorun fyrir hér­aðs­dómi 9. febr­úar sl. á hendur Seðla­bank­anum um að leggja skýrsl­una fram í því máli sem nú er rekið fyrir dómi á hendur bank­anum til ógild­ingar á því litla sem eftir stendur af öllum þessum skelfi­lega mála­til­bún­aði Seðla­bank­ans. Það kemur í ljós á morgun [í dag] hvort og þá hvernig Seðla­bank­inn mun bregð­ast við þeirri áskor­un,“ segir í Garðar í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans. 

Málið verður tekið fyrir klukkan 11:15 í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag. Lög­maður Seðla­banka Íslands er Steinar Þór Guð­geirs­son hrl. Þessi miss­erin er hann einnig að störfum fyrir íslenska ríkið þegar kemur að sölu á eignum Lind­ar­hvols ehf., sem tók við tug­millj­arða eignum frá slita­búum föllnu bank­anna sem þau lögðu rík­inu til eignar sem hluta af upp­gjöri þeirra. Þá greindi DV frá því í fyrra að Steinar hefði verið skip­aður eft­ir­lits­maður stjórn­valda í sölu­ferl­inu á Arion banka.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None