Skipar starfshóp um aðskilnað viðskipta- og fjárfestingabanka

Benedikt Jóhannesson er að skipa starfshóp til að skoða kosti og galla aðskilnaðar á viðskipta- og fjárfestingabankastarfsemi. Hópurinn á að skila skýrslu í vor sem lögð verður fyrir Alþingi.

Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhannesson fjármálaráðherra.
Auglýsing

Bene­dikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur ákveðið að skipa starfs­hóp sem á að skoða kosti og galla þess að aðskilja við­skipta­banka- og fjár­fest­inga­banka­starf­semi íslenskra banka. Starfs­hóp­ur­inn á að skila skýrslu sem ráð­herra hyggst leggja fram á Alþingi á yfir­stand­andi vor­þingi.

Í bréfi sem Seðla­banki Íslands sendi efna­hags- og við­skipta­nefnd vegna óskar hennar um umsögn bank­ans um þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um aðskilnað við­skipta­banka- og fjár­fest­inga­banka­starf­semi kemur fram að bank­inn myndi ekki skila slíkri. Ástæðan væri sú að fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefði óskað eftir því við bank­ann að hann til­nefni full­trúa í starfs­hóp sem hafi það verk­efni að skoða kosti og galla þess að aðskilja við­skipta­banka- og fjár­fest­ing­ar­banka­starf­semi.

Ekk­ert hefur verið greint frá til­vist slíks starfs­hóps opin­ber­lega og Kjarn­inn beindi því fyr­ir­spurn til ráðu­neyt­is­ins um mál­ið.

Auglýsing

Í svari þess er stað­fest að til standi að skipa umræddan starfs­hóp og að hann eigi að skila af sér á vor­þingi. Óskað hefur verið eftir því að Fjár­mála­eft­ir­lit­ið, Seðla­banki Íslands og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið skipi full­trúa í hóp­inn. Enn sem komið er þá er hóp­ur­inn ekki mann­aður en mælst var til þess að til­nefn­ingar myndu ber­ast ráðu­neyt­inu eigi síðar en í dag, 8. mars.

Í svari ráðu­neyt­is­ins segir enn fremur að starfs­hóp­ur­inn sem áformað sé að skipa muni nánar til tekið fá það hlut­verk að skoða erlenda lög­gjöf um aðskilnað við­skipta­banka- og fjár­fest­ing­ar­banka­starf­semi og leggja mat á það hvaða kostir og gallar séu á slíkri lög­gjöf fyrir fjár­mála­markað hér á landi. „Þá skuli hann skoða og hvort ástæða sé til að tak­marka áhættu af fjár­fest­ing­ar­banka­starf­semi alhliða banka, og þá hvaða leiðir séu fær­ar. Sér­stak­lega mun starfs­hóp­ur­inn  nýta vinnu starfs­hóps sem skip­aður var af fyrr­ver­andi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hinn 27. apríl 2016 um svipað verk­efni, en sá hópur skil­aði áfanga­skýrslu haustið 2016.“

Ráðu­neytið greiðir ekki sér­stak­lega fyrir störf í starfs­hópnum og valið verður úr til­nefn­ingum svo að kynja­skipt­ing verði sem jöfn­ust.

Sá hópur sem skip­aður var á síð­asta kjör­tíma­bili, og skil­aði áfanga­skýrslu í haust, sam­an­stóð af full­trúum sömu aðila og eiga að til­nefna í nýja hóp­inn. Hann átti upp­haf­lega að skila til­lögum sínum í formi laga­frum­varps eigi síðar en 1. sept­em­ber 2016, en af því varð ekki. Starfs­hóp­ur­inn var skip­aður Leifi Arn­keli Skarp­héð­ins­syni, sér­fræð­ingi á skrif­stofu efna­hags­mála og fjár­mála­mark­aðar hjá fjár­mála­ráðu­neyt­inu og jafn­framt for­manni hóps­ins, Sig­ríði Bene­dikts­dótt­ur, þáver­andi fram­kvæmda­stjóra fjár­mála­stöð­ug­leika­sviðs Seðla­banka Íslands, Sig­ríði Loga­dótt­ur, aðal­lög­fræð­ingi Seðla­bank­ans, Jóni Þór Sturlu­syni, aðstoð­ar­for­stjóra Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, og Björk Sig­ur­gísla­dótt­ur, lög­fræð­ingi hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None