Wernessynir þurfa að greiða 5,2 milljarða til þrotabús Milestone

Dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Karl Wernersson.
Karl Wernersson.
Auglýsing

Karl og Stein­grím­ur Wern­er­s­­syn­ir og Guð­mund­ur Óla­son, sem allir hafa verið kenndir við Milesto­ne, voru í dag dæmd­ir í Hér­aðs­dómi Reykja­vík­­ur til að greiða þrota­­búi Milest­one 5,2 millj­­arða vegna milli­­­færsla sem voru gerðar á reikn­ing Ing­unn­ar Wern­er­s­dótt­­ur, syst­ur bræðranna, en með því létu þeir fé­lagið fjár­­­magna kaup sín á hluta­fé Ing­unn­ar í Milest­o­ne. 

Áður höfðu þre­­menn­ing­­arn­ir hlotið fang­els­is­­dóm vegna við­skipt­anna, en Hæsti­réttur felldi dóm í mál­inu 28. apríl í fyrra

Karl fékk þriggja og hálfs árs dóm en Stein­grímur tveggja ára dóm. Mála­­­rekstur hér­­aðs­sak­­­sókn­­­ara snérist um að greiðslur upp á 4,8 millj­­­arða króna sem runnu út úr félag­inu Milesto­­ne, sem bræð­­urnir áttu og stýrðu, til Ing­unnar Wern­er­s­dótt­­­ur, systur þeirra, á árunum 2006 og 2007, hefðu verið umboðs­­­svik. Karl, Stein­grímur og Guð­­­mundur Óla­­­son, fyrrum for­­­stjóri Milesto­­­ne, voru ákærðir fyrir að hafa tekið sam­eig­in­­­lega ákvörðun um að greiða Ing­unni þessa upp­­­hæð út úr Milestone til að losa hana undan eign sinni í félag­in­u. Auk þeirra voru þrír end­­­ur­­­skoð­endur hjá KPMG ákærðir í mál­inu vegna ætl­­­aðra bók­halds­­­brota. 

Auglýsing

Guð­mund­ur var fram­­kvæmda­­stjóri Milestone á þess­um tíma sem greiðsl­urn­ar voru inn­t­ar af hendi og færðar í bók­hald og var með pró­kúru fyr­ir fé­lag­ið. Bræð­ur­n­ir voru aft­ur á móti eig­end­ur þess. Seg­ir í dómn­um að þeir hafi því all­ir sam­­kvæmt stöðum sín­um hjá fé­lag­inu getað bakað sér bóta­á­byrgð.

Í dómi hér­aðs­dóms segir meðal ann­rs: „Að­ilar máls þessa hafa ekki fært sönn­ur á að at­vik hafi verið önn­ur en hér er lýst. Í þessu ljósi verður að leggja til grund­vall­ar að Milest­one ehf. hafi með fram­an­­greind­um ráð­stöf­un­um verið látið greiða kaup­verð hluta­bréf­anna sam­­kvæmt samn­ing­un­um 4. des­em­ber 2005, sem hafi við kaup­in orðið eign stefndu Karls og Stein­gríms, án þess að leit­­ast væri við að tryggja þá aug­­ljósu hags­muni fé­lags­ins að það fengi fjár­­mun­ina greidda til baka eða að öðrum kosti eitt­hvert end­­ur­­gjald er svar­aði kaup­verð­inu. Breyt­ir engu í því sam­­bandi þó að reynt hafi verið að láta Milest­one Import Export Ltd., er laut yf­ir­ráðum stefndu Karls og Stein­gríms, taka á sig skyldu til að greiða Milest­one ehf. þessa fjár­­muni til baka, enda gat krafa Milest­one ehf. á hend­ur því fé­lagi í raun ekki verið neins virði. Þess­ar ráð­staf­an­ir voru ber­­sýn­i­­lega til þess falln­ar að afla hlut­höf­um Milest­one ehf., stefndu Karli og Stein­grími, ótil­hlýði­legra hags­muna á kostnað fé­lags­ins, auk þess að fela í sér mis­­­not­k­un á aðstöðu inn­­an fé­lags­ins í við­skipt­um með hluti í því og öðrum fé­lög­um inn­­an sömu sam­­stæð­u,“ seg­ir í dómi hér­aðs­dóms.

Ekki liggur fyrir hvort dómnum verður áfrýjað til Hæsta­rétt­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None