Meirihluti Íslendinga á móti vegatollum

58% Íslendinga eru á móti vegatollum, en 42% eru hlynntir slíkum tollum. Íbúar Suðurlands og Reykjaness eru helst á móti tollum.

Þjóðvegur 1
Auglýsing

Um 58 pró­sent Íslend­inga eru á móti vega­toll­um, sem not­aðir yrðu til upp­bygg­ingar á vega­kerf­inu á Íslandi, á meðan 42 pró­sent eru fylgj­andi slíkum toll­um. Þetta kemur fram í nýrri könnun frá Mask­ínu

Mik­ill munur er á afstöðu fólks eftir því hvar það býr. Þannig er mest and­staða við vega­tolla á Suð­ur­landi og Reykja­nesi, þar sem 73 pró­sent eru á móti, en minnst and­staða hjá íbúum Reykja­vík­ur­borg­ar, þar sem sléttur helm­ingur er á móti vega­toll­um. Í Reykja­vík er einnig mestur stuðn­ingur við vega­tolla, þegar val er um að fara aðra leið, en 34,4 pró­sent Reyk­vík­inga sögð­ust hlynntir slíkri lausn. 

51,9 pró­sent íbúa á Aust­ur­landi eru á móti vega­toll­um, en á Aust­ur­landi er einnig hæst hlut­fall þeirra sem vilja vega­tolla hvort sem hægt er að fara aðra leið til að forð­ast tolla eða ekki. 

Auglýsing

Af þeim sem eru hlynntir vega­tollum sögð­ust 29-30 pró­sent þeirra vera hlynntir vega­tollum til upp­bygg­ingar í vega­kerf­inu aðeins þar sem maður hefur val um aðra leið, en 12-13 pró­sent eru hlynntir vega­tollum óháð því hvort val er um aðra leið eða ekki. 

Mark­tækur munur er á milli kynj­anna, en karlar eru frekar á móti vega­tollum en kon­ur, tæp­lega 60 pró­sent karla eru á móti en tæp­lega 56 pró­sent kvenna. Þá er líka mark­tækur munur eftir mennt­un, en fólk með grunn­skóla­próf var mun lík­legra til að vera á móti upp­töku vega­tolla en fólk með aðra mennt­un. 72,6 pró­sent grunn­skóla­mennt­aðra sögð­ust vera á móti upp­töku vega­tolla, en 56,6 pró­sent þeirra sem hafa fram­halds­skóla­próf eða iðn­mennt­un, og 54,7 pró­sent þeirra sem hafa háskóla­gráðu. 

Kjós­endur Bjartrar fram­tíðar eru hlynnt­astir upp­töku vega­tolla, en 50,8 pró­sent þeirra segj­ast hlynntir vega­tollum þar sem val er um aðra leið, og tæp 17 pró­sent óháð því. 32,3 pró­sent eru á móti upp­töku vega­tolla. 

Mest and­staða við upp­töku vega­tolla er hjá kjós­endum Pírata, en 71 pró­sent þeirra sögð­ust vera á móti slíkum toll­um. Meiri­hluti kjós­enda ann­arra flokka eru á móti vega­toll­um, 52,2 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins og 55 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None