Fullt afnám hafta kynnt í dag – Ríkisstjórnin fundar í hádeginu

Tillögur til að afnema höft að öllu leyti verða lagðar fyrir ríkisstjórnarfund í hádeginu í dag. Hrinda þarf þeim í framkvæmd áður en markaðir opna í fyrramálið.

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Benedikt Jóhannesson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Benedikt Jóhannesson fjármála- og efnahagsráðherra.
Auglýsing

Boðað hefur verið til rík­is­stjórn­ar­fundar í hádeg­inu í dag með skömmum fyr­ir­vara. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans er efni hans til­lögur um aðgerðir í átt að fullu afnámi fjár­magns­hafta. 

Blaða­manna­fundur verður hald­inn síð­degis þar sem málið verður kynnt almenn­ingi og fjöl­miðl­um. Fund­ur­inn fer fram í ráð­herra­bú­staðnum klukkan tvö og boð­uðu bæði Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra og Bene­dikt Jóhann­es­son fjár­mála­ráð­herra til fund­ar­ins. Ljóst er að klára þarf þau skref sem þarf að stíga í aðgerð­unum í dag til að hægt verði að koma þeim í gagnið áður en mark­aðir opna í fyrra­mál­ið, til að alls jafn­ræðis sé gætt.

Fjár­magns­höft hafa í gildi hér­lendis frá því í nóv­em­ber 2008. Þau voru sett í kjöl­far banka­hruns­ins þegar gengi krón­unnar féll skarpt og nauð­syn­legt varð að hindra útflæði fjár­magns úr íslensku efna­hags­kerfi. Á und­an­förnum árum hefur verið unnið að því að minnka þær krónu­eignir í eigu erlendra aðila sem voru innan hafta m.a. með víð­feðmu sam­komu­lagi við kröfu­hafa föllnu bank­anna um að þeir myndu greiða þorra inn­lendra eigna sinna til rík­is­sjóðs í formi stöð­ug­leika­fram­laga gegn því að fá að losa um aðrar eignir sín­ar. 

Auglýsing

Á síð­ustu árum hefur svo orðið algjör efna­hags­legur við­snún­ingur á Íslandi, aðal­lega vegna auk­ins ferða­manna­straums. Sá við­snún­ingur hefur leitt til þess að eitt þeirra vanda­mála sem ótt­ast að myndi verða við afnám hafta, að krónan myndi veikj­ast mik­ið, er ekki vanda­mál leng­ur. Nú er krónan þvert á móti orðin það sterk að margir inn­lendur atvinnu­vegir myndu þiggja það með þökkum ef hún veikt­ist og stjórn­völd hafa verið að und­ir­búa sér­stakar aðgerðir til við­náms vegna styrk­ingu krón­unn­ar.

Sagði afnám framundan á næstu vikum eða mán­uðum

Slakað hefur verið á fjár­magns­höftum á síð­ast­liðnum rúma ári í nokkrum skref­um. Heim­ildir líf­eyr­is­sjóða til að fjár­festa utan Íslands hafa verið rýmkaðar og heim­ildir almenn­ings og fyr­ir­tækja til að stunda gjald­eyr­is­við­skipti og fjár­festa utan hafta hafa líka verið auknar í litlum skrefum frá ágúst­mán­uði 2016. Frá og með síð­ustu ára­mótum má almenn­ingur til að mynda fjár­festa fyrir allt að 100 millj­ónum króna utan íslensks hag­kerf­is. Þrátt fyrir þessi skref var ljóst að höft voru enn til staðar og Seðla­banki Íslands hafði áfram stíft eft­ir­lits­hlut­verk og ýmis tól til inn­grips ef hann teldi þess þurfa.

Hafta­málin hafa verið til umræðu í þing­inu á und­an­förnum dög­um. Bene­dikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði í vik­unni í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma að verið væri að und­ir­búa aðgerðir til við­náms í gjald­eyr­is­málum vegna styrk­ingar krón­unn­ar. Afnám hafta gæti átt sér stað á næstu vikum eða mán­uð­um. Nú er ljóst að mun styttra er í þær aðgerðir en áður var af lát­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None