Lífsverk fær 835 milljónir í bætur

Tryggingafélagið VÍS var dæmt í Héraðsdómi Reykjavíkur til greiðslu bóta en hafði áfrýjað. Málið átti að koma fyrir Hæstarétt á morgun, en sátt náðist og lífeyrissjóðurinn fær 835 milljóna eingreiðslu.

Málið átti að fara fyrir Hæstarétt á morgun, en af því verður ekki.
Málið átti að fara fyrir Hæstarétt á morgun, en af því verður ekki.
Auglýsing

Trygg­inga­fé­lagið VÍS greiðir Lífs­verki líf­eyr­is­sjóði ein­greiðslu upp á 835 millj­ónir króna í sátt í dóms­máli sem líf­eyr­is­sjóð­ur­inn höfð­aði gegn VÍS og fyrrum stjórn­endum sjóðs­ins. VÍS sjálft greiðir 15% af upp­hæð­inni vegna end­ur­tryggj­enda, eða 129 millj­ónir króna.

Málið snýst um tvær fjár­­­fest­ingar sem þáver­andi stjórn og stjórn­­endur líf­eyr­is­­sjóðs­ins tóku ákvarð­­anir um, í mars og sept­­em­ber 2008, í svo­­nefndum láns­hæf­istengdum skulda­bréfum (e. credit lin­ked not­es), sem gefin voru út af svis­s­­neska bank­­anum UBS AG, Jersey  Branch, en fjár­­­fest­ingar þessar voru gerðar fyrir milli­­­göngu Lands­­banka Íslands. 

Lífs­verk byggði málið meðal ann­­ars á því að ákvarð­­anir fyrrum stjórn­­enda sjóðs­ins og umræddar fjár­­­fest­ingar sam­­kvæmt þeim hafi verið ólög­­mætar þar sem þær hafi stang­­ast á við þær fjár­­­fest­ing­­ar­heim­ildir sem líf­eyr­is­­sjóðir njóta sam­­kvæmt lögum um skyld­u­­trygg­ingu líf­eyr­is­rétt­inda og starf­­semi líf­eyr­is­­sjóða. Láns­hæf­istengdu skulda­bréfin hafi verið afleið­u­­gern­ing­­ar, en ekki skulda­bréf, sem óheim­ilt hafi verið að eiga við­­skipti með.

Auglýsing

Stjórn Lífs­verks fór fram á bætur í sam­ræmi við gild­andi stjórn­enda­trygg­ingu milli aðil­anna á þeim for­sendum að um hefði verið að ræða fjár­fest­ingar sem stöng­uð­ust á við fjár­fest­ing­ar­heim­ild­irn­ar. 

Í apríl í fyrra var VÍS dæmt til að greiða 852 millj­ónir króna auk vaxta og drátt­ar­vaxta í Hér­aðs­dómi Reykja­vík­ur. VÍS áfrýj­aði og til stóð að málið yrði tekið fyrir á morgun í Hæsta­rétti. AF því verður hins vegar ekki því sam­komu­lag náð­ist um ein­greiðsl­una. 

Í til­kynn­ingu frá Lífs­verki er haft eftir Val Hregg­viðs­syni stjórn­ar­for­manni að ánægja ríki með sam­komu­lagið áður en málið fór fyrir Hæsta­rétt með þeirri óvissu sem því hefði fylgt. Stjórnin telji þetta góða nið­ur­stöðu fyrir sjóðs­fé­laga. „Vissu­lega gefum við eftir af okkar ítr­ustu kröfum en nið­ur­staðan sam­svarar því að sjóð­ur­inn fengi greitt sem svarar til eins tjóns­at­burð­ar, sem var að hámarki 500 millj­ónir króna, auk drátt­ar­vaxta og kostn­að­ar. Þetta sýnir að það mat stjórnar var rétt að hags­munum sjóð­fé­laga væri best gætt með því að láta reyna á bóta­skyldu fyrir dómi.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None