Gistináttaskatturinn fer beint í ríkissjóð

Samkvæmt frumvarpi ferðamálaráðherra mun framkvæmdasjóður ferðamannastaða ekki lengur vera fjármagnaður beint með hluta gistináttaskatts.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Auglýsing

Fram­kvæmda­sjóður ferða­manna­staða verður ekki lengur fjár­magn­aður með gistin­átta­skatti, sam­kvæmt drögum að frum­varpi um breyt­ingar á lögum um sjóð­inn, sem búið er að birta á vef atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins. Þá munu ferða­manna­staðir í opin­berri eigu ekki lengur geta sótt um styrki í sjóð­inn heldur ein­göngu ferða­manna­staðir í einka­eigu eða eigu sveit­ar­fé­laga. 

Sam­kvæmt núgild­andi lögum fær fram­kvæmda­sjóður ferða­manna­staða 3/5 hluta þeirra tekna sem ríkið fær af gistin­átta­skatti. Fyrir jól var gistin­átta­skatt­ur­inn þre­fald­aður úr 100 krónum á hverja selda ein­ingu í 300 krónur á hverja selda gistin­átta­ein­ingu. Sú breyt­ing tekur gildi þann 1. sept­em­ber næst­kom­andi. Því hefði fram­kvæmda­sjóð­ur­inn að óbreyttu fengið tals­vert hærri fram­lög af fjár­lög­um, en gert var ráð fyrir því að auknar tekjur rík­is­ins af hærri gistin­átta­skatti yrðu 300 millj­ónir á þessu ári og 1,2 millj­arðar á næsta ári. 

Ef frum­varp Þór­dísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ur, ferða­mála-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, verður að lögum mun þetta breyt­ast. Sam­kvæmt frum­varp­inu verður fram­lag rík­is­sjóðs í fram­kvæmda­sjóð­inn ákveðið á fjár­lög­um, og sjóð­ur­inn fær því ekki mark­aðar tekjur af gistin­átta­skatti. Þetta er í sam­ræmi við fyr­ir­komu­lag laga um opin­ber fjár­mál þar sem almennt er ekki gert ráð fyrir því að tekjur séu mark­aðar í til­tekin verk­efn­i. 

Auglýsing

Sam­kvæmt grein­ar­gerð með frum­varp­inu hefur ríkið sett tals­vert meiri pen­inga inn í sjóð­inn heldur en hlutur hans af gistin­átta­skatt­inum hefur sagt til um. Þannig var það í fyrra og gert er ráð fyrir veru­legum við­bót­ar­fram­lögum á fjár­lögum árs­ins í ár. 

Sveit­ar­fé­lögin vildu hluta af gistin­átta­skatti

Líkt og Kjarn­inn greindi frá þegar gistin­átta­skatt­ur­inn var hækk­aður vildi Sam­band íslenskra sveit­ar­fé­laga að sveit­ar­fé­lög lands­ins fengju helm­ing eða tvo þriðju hluta af gistin­átta­skatt­inum vegna þeirra ferða­manna sem gista innan þeirra marka. Þær tekjur myndu svo renna til þess að byggja upp inn­viði ferða­þjón­ust­unnar í því sveit­ar­fé­lag­i. 

Þessu voru Sam­tök ferða­þjón­ust­unnar ósam­mála, og vildu að skatt­ur­inn yrði óskiptur lát­inn renna inn í fram­kvæmda­sjóð ferða­manna­staða. 

Þrátt fyrir að sjóð­ur­inn hafi fengið hærri fram­lög en sem nemur skatt­inum var ákveðið að lækka fram­lögin til hans um 600 millj­ónir króna milli umræðna um fjár­laga­frum­varpið fyrir jól. Ástæðan er sú að það hefur tekið mun lengri tíma að ráð­stafa fé sjóðs­ins en gert hafði verið ráð fyr­­ir. 

Í fjár­­­lögum síð­­­asta árs var ákveðið að auka fram­lögin um 517 millj­­­ónir króna þrátt fyrir að þá hefðu 1,2 millj­­­arður króna legið óhreyfður í sjóðnum um langt skeið. Iðn­­­­að­­­­ar- og við­­­­skipta­ráðu­­­­neytið greindi frá því í sept­­­­em­ber árið 2015 að við und­ir­­­­bún­­­­ing fjár­­­­laga fyrir 2016 hefði komið í ljós að „um­tals­verðir fjár­­­­mun­ir“ eða 1,2 millj­­­­arðar króna, lægju enn óhreyfðir í sjóðn­­­­­­­um. Þessum fjár­­­­munum hafði ekki enn verið ráð­stafað í þau verk­efni sem þeim hafði verið úthlutað til. Ýmsar ástæður væru fyrir því en ljóst væri að bæta þyrfti úr skipu­lagi og fram­­­­kvæmd. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None