Skipting innanríkisráðuneytis kostar 120 milljónir á ári

Alþingi ræðir nú um varanlega skiptingu innanríkisráðuneytisins í tvö ráðuneyti. Flestir umsagnaraðilar styðja tillöguna, en minnihluti þingsins gagnrýnir kostnað og segir ástæðuna fyrst og fremst vöntun á ráðherrastólum.

Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar á fyrsta ríkisráðsfundi sínum.
Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar á fyrsta ríkisráðsfundi sínum.
Auglýsing

Alþingi ræðir nú um áform stjórn­ar­meiri­hlut­ans um að skipta upp inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu á nýjan leik í tvö ráðu­neyti, ann­ars vegar dóms­mála­ráðu­neyti og hins vegar sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyti. Ráðu­neytin voru sam­einuð í eitt inn­an­rík­is­ráðu­neyti eftir hrun, rétt eins og önnur ráðu­neyti voru sam­ein­uð. 

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra lagði fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um þetta í jan­ú­ar, þegar ný rík­is­stjórn tók við völd­um. Ný rík­is­stjórn fjölg­aði ráð­herrum og er með tvo ráð­herra í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu, þau Sig­ríði And­er­sen dóms­mála­ráð­herra og Jón Gunn­ars­son sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra. Það var gert með for­seta­úr­skurði, rétt eins og venja er þegar ráðu­neytum er skipt. Til­lagan snýst hins vegar um að ráðu­neyt­inu sjálfu verði skipt í tvennt, og ráðu­neytin verði því níu í stað átta. Verið er að ræða málið í seinni umræðu á Alþingi.

Sex umsagnir hafa borist stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd vegna þess­ara breyt­inga, og allir sem taka afstöðu til þess fagna áform­uðum breyt­ing­um. Dóm­stóla­ráð fagnar til­lög­unni og seg­ist telja meðal ann­ars í ljósi þeirra umfangs­miklu breyt­ingar sem framundan séu í dóms­kerf­inu að það sé mik­il­vægt að mála­flokk­ur­inn falli undir sér­stakt fagráðu­neyti dóms­mála. 

Auglýsing

Land­helg­is­gæslan fagnar breyt­ing­unni og „tekur undir þau meg­in­sjón­ar­mið sem liggja að baki breyt­ing­unni, þ.e. að með stofnun dóms­mála­ráðu­neytis verði hin póli­tíska for­ysta mark­viss­ari, færi ráðu­neyt­unum aukna sér­þekk­ingu sem og yfir­sýn.“

Lög­reglu­stjóra­fé­lag Íslands styður einnig fyr­ir­hug­aða breyt­ingu. „Fé­lagið bindur vonir við að breyt­ingin hafi í för með sér jákvæð áhrif á starf­semi nýrra ráðu­neyta og telur jákvæða þá upp­stokkun á mál­efna­sviðum sem lagt er til í til­lögu að þings­á­lykt­un.“ 

Sam­band íslenskra sveit­ar­fé­laga fagnar einnig til­lög­unni og styður hana ein­dreg­ið. Sam­bandið segir mál­efni sveit­ar­fé­laga ekki hafa fengið nægi­legt vægi í inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu og bindur vonir við að breyt­ing verði á því með upp­skipt­ingu ráðu­neyt­is­ins. 

Van­reifað og snýst um jafn­vægi milli flokka

Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, full­trúi VG í stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd, skil­aði minni­hluta­á­liti um málið þar sem lagst er gegn því. Hún seg­ist telja málið van­reif­að, fyrir því liggi ekki fag­legur rök­stuðn­ing­ur, verið sé að tvístra starfs­kröftum í ráðu­neytum í stað þess að sam­þætta og samnýta, og að und­ir­bún­ingi hafi verið veru­lega áfátt. Það hafi ekki verið lögð fram nein skýr efn­is­leg rök, og ekki hafi legið fyrir neitt mat á kostn­að­inum við upp­skipt­ing­una þegar til­lagan var lögð fram. Það beri þess merki að um sé að ræða fyrst og fremst ráð­stöfun sem snú­ist um jafn­vægi milli flokka í myndun rík­is­stjórn­ar­inn­ar. 

Sam­kvæmt kostn­að­ar­mati sem gert var við vinnslu máls­ins var gert ráð fyrir allt að sjö nýjum stöðu­gildum við breyt­ing­arnar og kostn­aði sem nemur um 120 millj­ónum króna á ári. Meiri­hluti stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar segir hins vegar í sínu meiri­hluta­á­liti um málið að hann telji að auk eðli­legt upp­hafs­kostn­aðar eigi breyt­ing­arnar að fela í sér kostnað vegna ráðn­ingar ráðu­neyt­is­stjóra og rit­ara hans. Ekki sé verið að sam­þykkja frek­ari útgjalda­aukn­ing­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None