44% íslenskra heimila með áskrift að Netflix

Tæpur helmingur íslenskra heimila er með áskrift að efnisveitunni Netflix, samkvæmt nýrri könnun Gallup. Félag rétthafa í sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði fer fram á að stjórnvöld jafni aðstöðu íslenskra efnisveita.

Netflix ruv og 365
Auglýsing

44 pró­sent íslenskra heim­ila eru með áskrift að efn­isveit­unni Net­flix sam­kvæmt nýrri könnun sem Gallup gerði fyrir FRÍSK, félag rétt­hafa í sjón­varps- og kvik­mynda­iðn­aði. Þrjú til fjögur pró­sent heim­ila eru einnig með áskrift að öðrum erlendum veit­um, eins og Google Play og Amazon Prime Vid­eo. 

Í frétta­til­kynn­ingu frá FRÍSK kemur fram að rétt um mán­uði áður en Net­flix opn­aði form­lega á Íslandi, í des­em­ber 2015, hafi könnun sýnt að 22 pró­sent heim­ila væru með Net­fl­ix. 

„Er­lend­ar efn­isveitur á borð við Google Play og Net­fl­ix, sem hafa opnað fyrir þjón­ustu sína á Ísland­i, sem og raf­rænar tón­list­ar­veitur á borð við Spotify og Google Music, greiða engan virð­is­auka­skatt eða önnur opin­ber gjöld hér á landi. Íslenski sjón­varps- og kvik­mynda­iðn­að­ur­inn greiðir sam­an­lagt um 12 millj­arða króna árlega til hins opin­bera og skapar að lág­marki 1.300 árs­verk í land­inu (2.000 óbein árs­verk). Erlendar efn­isveitur borga ekk­ert og skapa engin árs­verk,“ segir í til­kynn­ingu frá FRÍSK. 

Auglýsing

Hall­grímur Krist­ins­son, stjórn­ar­for­maður FRÍSK, segir að félags­menn kvíði ekki sam­kepppni við erlendar efn­isveit­ur, en að slík sam­keppni þurfi að fara fram á jafn­rétt­is­grund­velli. „Álögur og kvaðir á inn­lenda aðila verða að lækka ellegar verður minna inn­lent efni í boði og við sitjum uppi með erlendar efn­isveitur og erlent efni. Rann­sóknir sýna að tæp 88% lands­manna telja mik­il­vægt að sýnt sé inn­lent sjón­varps- og kvik­mynda­efni. Það er því með öllu ótækt að erlend­ar efn­isveitur borgi hér engan virð­is­auka­skatt, skattur á tón­list og bókum sé 11% en myndefn­isveitur og kvik­mynda­hús borgi 24%“ 

Sam­kvæmt könnun Gallup og útreikn­ingum hafi inn­lendir aðilar og rétt­hafar orðið af tæpum 1,7 millj­arði króna í við­skiptum árlega vegna sam­keppni við Net­flix og aðrar þjón­ust­ur. 

Sam­tökin vilja að Alþingi taki umsvifa­laust skref í þá átt að jafna sam­keppn­isum­hverfið gagn­vart þeim erlendu efn­isveit­um, og dragi úr álögum á íslenska iðn­að­inn. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None