Tæplega 24,8 milljarðar króna í arð til ríkisins frá Landsbankanum

Arðgreiðslur Landsbankans til ríkisins nema meira en hundrað milljörðum á síðustu fjórum árum.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.
Auglýsing

Á aðal­fundi Lands­bank­ans í dag var sam­þykkt að bank­inn greiði alls 24,8 millj­arða króna í arð á árinu 2017. Ann­ars vegar er um að ræða 13 millj­arða króna arð­greiðslu vegna rekstr­ar­árs­ins 2016 sem sam­svarar um 78 pró­sent af hagn­aði árs­ins og hins vegar sér­stakan arð til hlut­hafa að fjár­hæð 11,8 millj­arðar króna. Alls munu arð­greiðslur bank­ans á árunum 2013-2017 því nema um 107 millj­örðum króna.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Lands­bank­an­um, en íslenska ríkið á ríf­lega 98 pró­sent hlut í bank­an­um.

Á fund­inum var greint frá nýrri arð­greiðslu­stefnu sem banka­ráð sam­þykkti í mars síð­ast­liðn­um. Í stefn­unni er gert ráð fyrir að reglu­legar arð­greiðslur til hlut­hafa verði að jafn­aði 60-80 pró­sent af hagn­aði fyrra árs. 

Hluthafalisti Landsbankans, eins og hann birtist í ársreikningin. Landsbankinn hagnaðist um 16,6 milljarða króna í fyrra.

Í sam­ræmi við fjár­mögn­un­ar­stefnu bank­ans er einnig stefnt að sér­stökum arð­greiðslum til þess að auka hag­kvæmni í fjár­magns­skipan bank­ans, að því er segir í til­kynn­ingu. Við ákvörðun um arð­greiðslur verði tryggt að bank­inn upp­fylli lög­bundnar kröfur á hverjum tíma og við­haldi sterkri fjár­hags­stöðu.

Auglýsing

Eft­ir­talin voru kjörin aðal­menn í banka­ráð Lands­bank­ans:

  • Berg­lind Svav­ars­dóttir

  • Einar Þór Bjarna­son

  • Helga Björk Eiríks­dóttir

  • Hersir Sig­ur­geirs­son

  • Jón Guð­mann Pét­urs­son

  • Magnús Pét­urs­son

  • Sig­ríður Bene­dikts­dóttir

Helga Björk Eiríks­dóttir er for­maður banka­ráðs­ins.

Eft­ir­talin voru kjörin vara­menn í banka­ráð:

  • Ásta Dís Óla­dóttir

  • Sam­úel Guð­munds­son

Aðal­fundur sam­þykkti óbreytta starfs­kjara­stefnu fyrir bank­ann. „Þá var sam­þykkt til­laga um að þóknun til banka­ráðs­manna verði 400.000 kr. á mán­uði, þóknun til stjórn­ar­for­manns verði 700.000 kr. á mán­uði og þóknun til vara­for­manns verði 500.000 kr. Því til við­bótar skuli greiða banka­ráðs­mönnum 200.000 kr. á mán­uði fyrir þátt­töku í starfi und­ir­nefnda banka­ráðs en auk þess fái for­menn und­ir­nefnda banka­ráðs greiddar 25.000 kr. á mán­uð­i.“

Þóknun til vara­manns í banka­ráði verði 200.000 kr. fyrir hvern fund í banka­ráði eða fund með Fjár­mála­eft­ir­lit­inu um hæf­is­mat en þó aldrei hærri en þóknun aðal­manns innan hvers mán­að­ar. Greiðsla til hvers vara­manns skal nema að lág­marki 400.000 kr. á ári,“­segir í til­kynn­ing­unni.

Á fund­inum var sam­þykkt heim­ild þess efnis að Lands­bank­inn eign­ist eigin hluti allt að 10% af nafn­verði hluta­fjár. Lægsta og hæsta fjár­hæð sem Lands­bank­inn má reiða fram sem end­ur­gjald fyrir hvern hlut skal vera bók­fært virði hvers hlut­ar, þ.e. sam­svara hlut­falli á milli eigin fjár sem til­heyrir hlut­höfum bank­ans og hluta­fjár, sam­kvæmt síð­asta birta árs­upp­gjöri eða árs­hluta­upp­gjöri áður en kaup á eigin hlutum fara fram. Heim­ild þessi gildir fram að aðal­fundi Lands­bank­ans árið 2018. Ráð­stöfun Lands­bank­ans á eigin hlutum sem keyptir verða á grund­velli þess­arar heim­ildar er háð sam­þykki hlut­hafa­fund­ar.

Lands­bank­inn er stærsti banki lands­ins en heild­ar­eignir hans í lok árs­ins, námu ríf­lega 1.100 millj­örðum króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None