Bjarni: Jákvætt að fá banka með framtíðareignarhald

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir jákvætt að Arion banki verði skráður á markað og í fyrsta skipti frá hruni fáist banki með framtíðareignarhald.

Bjarni og Sigurður Ingi tókust á í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi.
Bjarni og Sigurður Ingi tókust á í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi.
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra segir að eng­inn þriggja vog­un­ar­sjóða sem keyptu þriðj­ungs­hlut í Arion banka telj­ist kjöl­festu­fjár­festar og að hver sem er eigi að geta keypt hluti í fjár­mála­fyr­ir­tæki sem skráð sé á mark­að­i. 

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, spurði Bjarna í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag hvort kaup þriggja vog­un­ar­sjóða á eign­ar­hlut í Arion banka séu til þess fallin að auka traust á fjár­mála­kerfið á Íslandi. Þar að auki spurði hann hvort Bjarni teldi vog­un­ar­sjóði vera heppi­lega eig­endur banka og hvort það sé sið­ferð­is­lega verj­andi að einn þess­ara þriggja sjóða sé flæktur í spill­ing­ar­máli.

Auglýsing

Bjarni svar­aði að það hefði lengi verið fyr­ir­séð að nýir eig­endur myndu leita nýrra fjár­festa. Hið jákvæða væri að „við fáum banka sem fái eitt­hvað fram­tíð­ar­eign­ar­hald“ í fyrsta skipti frá hruni. Hann þvertók fyrir það að vera sér­stak­lega ánægður með ein­staka eig­endur bank­ans en bætti við að hluta­bréfa­kaup fjár­mála­fyr­ir­tækja á mark­aði séu frjáls.

„Fjár­mála­fyr­ir­tæki eins og öll önnur fyr­ir­tæki sem eru skráð á markað getur gengið kaupum og sölum og hver sem er getur keypt hlut í þeim.“ Bjarni bætti svo við að annað gildi þegar talað er um kjöl­festu­fjár­festa, en hingað til telj­ist eng­inn þeirra vera það. 

Þá vitn­aði Sig­urður Ingi í einn kaup­end­anna sem sagði að eign­ar­hlut­ur­inn væri tak­mark­aður um 9,99 pró­sent til að tefja ekki sölu­ferlið og að yfir­völd litu það jákvæðum aug­um. Sig­urður Ingi spurði hvaða aðilar það væru sem litu það jákvæðum aug­um. 

Bjarni sagð­ist ekki kann­ast við þessi orð en ítrek­aði að það væri reglu­verk til staðar fyrir virka eig­endur fjár­mála­fyr­ir­tækja. „Það gilda lög í land­inu þegar talað er um kjöl­festu­fjár­festa. Ég hef enga ástæðu til þess að ætla annað en að þar verði farið vel og vand­lega yfir þessi mál.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None