Hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustuna „reiðarslag“

Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri SAF, segir enga greiningu eða umræðu hafa farið fram á hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustu. Ekkert samráð hafi verið haft um málið. Stjórnvöld vilja tempra vöxt sem hefur verið hraðari en innviðauppbygging ræður við.

Auglýsing
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.

Helga Árna­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka ferða­þjón­ust­unn­ar, segir að fólk í ferða­þjón­ustu sé „í sjokki“ yfir fyr­ir­ætl­unum stjórn­valda um að færa stærstan hluta ferða­þjón­ust­unnar í efra þrep virð­is­auka­skatts. Þetta kom fram í við­tali við hana í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morg­un. Staðan sé grafal­var­leg og greinin hafi „stór­kost­legar áhyggjur af“ henn­i. 

Helga sagði að Sam­tök ferða­þjón­ust­unnar hefðu fengið að vita af fyr­ir­ætl­unum stjórn­valda klukku­tíma áður en til­kynnt var um þær opin­ber­lega. Hún gagn­rýndi mjög sam­ráðs­leysi við grein­ina og sagði enga umræðu hafa farið fram um hana. Þá liggi ekki fyrir nein grein­ing á áhrifum henn­ar. 

„Við erum langt frá því að vera ánægð með þetta og við bara teljum að þetta sé reið­ar­slag fyrir ferða­þjón­ust­una.“ Hún sagði að vissu­lega hafi ferða­mönnum fjölgað mjög, en víða úti á landi sé mikið verk óunnið og hægt að efla ferða­þjón­ust­una enn frek­ar. 

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra greindi frá áformunum um miðja síð­ustu viku. Hann spurði hvort það væri rétt­læt­an­legt að hafa grein­ina í und­an­þágu­þrep­inu, lægra þrepi virð­is­auka­skatts, í þeim til­gangi að styðja við og auka við­gang henn­ar. 

Í fjár­mála­á­ætlun Bene­dikts Jóhann­es­sonar fjár­mála­ráð­herra er svo nánar vikið að þessu. Þar kemur fram að breyt­ingin sé hluti af heild­stæðum breyt­ingum á virð­is­auka­skatts­kerf­inu. „Breyt­ingin tekur gildi um mitt ár 2018 og greinin hefur því 15 mán­uði til að laga sig að þess­ari breyt­ingu, frá kynn­ingu til gild­is­töku. Að því marki sem breyt­ingin hefur áhrif á fjölda ferða­manna er það til að tempra vöxt sem hefur verið hrað­ari en inn­viða­upp­bygg­ing ræður við.“ 

Það er á grund­velli þess­arar hækk­unar á virð­is­auka­skatt í ferða­þjón­ustu sem hægt verður að lækka virð­is­auka­skatt­inn úr 24 pró­sentum í 22,5 pró­sent.

Auglýsing

„Um­svif í grein­inni hafa ­mikil áhrif á nátt­úr­una, sam­fé­lag­ið, vinnu­mark­að­inn og flesta inn­viði. Til við­bótar er hætt við að lítil opin hag­kerfi, líkt og hið íslenska, verði ber­skjald­aðra gagn­vart áföllum eftir því ­sem aukn­ing útflutn­ings­tekna lands­ins tak­markast við ein­stakar grein­ar. Ef til þess kæmi, t.d. ­vegna of mik­illar hækk­unar á raun­geng­inu, að veru­lega drægi úr komum ferða­manna gæt­i af­leið­ingin orðið efna­hags­sam­drátt­ur, aukið atvinnu­leysi og lækkun eigna­verðs,“ segir einnig í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­inn­ar. 

Nátt­úra Íslands sé helsta ástæða þess að ferða­menn kjósi að sækja landið heim og það sé því mikið kapps­mál að landið og nátt­úran verði vernduð svo hámarka megi virði hennar til lengri tíma. „Jafn­framt er það hagur allra að búa við sterka ­sam­fé­lags­lega inn­viði. Það er því ekki endi­lega eft­ir­sókn­ar­vert að hámarka fjölda erlendra ­ferða­manna á hverjum tíma. Þess vegna er mik­il­vægt að skapa umgjörð og hvata sem eru til­ þess fallin að draga úr átroðn­ingi og tryggja sjálf­bæra upp­bygg­ingu ferða­þjón­ustu til lengri ­tíma lit­ið.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None