Seðlabankinn reynir aftur við aflandskrónueigendur

Aflandskrónueigendur sem hafa ekki viljað semja við Seðlabanka Íslands fram til þessa, og grætt vel á þeirri ákvörðun, hafa til 28. apríl að bregðast við nýju tilboði bankans.

Evrur - Gjaldmiðlar
Auglýsing

Seðla­banki Íslands hefur boð­ist til að kaupa aflandskrónur á ný. Eig­endum inn­stæða, víxla og skulda­bréfa sem útgefin eru af rík­is­sjóði eða Íbúða­lána­sjóði og eig­endum inn­stæðu­bréfa Seðla­banka Íslands er boðið að skipta aflandskrónum sínum á geng­inu 137,5 krónur fram til 28. apríl næst­kom­andi.

Um er að ræða sama gengi og aflandskrónu­eig­endum bauðst að fara út á snemma í mars, en þá ákváðu eig­endur rúm­lega helm­ings slíkra króna, alls 105 millj­arða króna, að ganga ekki að til­boði bank­ans. Eig­endur 90 millj­arða króna sam­þykktu hins vegar til­boð­ið.

Nýja til­boðið miðar við hag­stæð­asta kauptil­boð á þeim bréfum sem um ræðir þann 10. mars síð­ast­lið­inn. Það verð er frá 99 til 120,41 krónur á evru en að við­bættum áföllnum vöxt­um, sem Seðla­bank­inn til­greinir ekki hverjir eru. Eig­endur þeirra bréfa sem fá 120,41 krónur fyrir hverja evru munu því greiða minna en 14,2 pró­sent álag, að teknu til­liti til áfall­inna vaxta, fyrir að fá að fara út úr íslensku hag­kerfi. Líkt og áður sagði hafa aflandskrónu­eig­end­urnir frest til 28. apríl til að taka til­boði Seðla­bank­ans.

Höfn­uðu til­boði Seðla­bank­ans og högn­uð­ust mjög á því

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Seðla­bank­inn reynir að leysa aflandskrónu­vand­ann með afar­kostum gagn­vart eig­endum aflandskróna. Sum­arið 2016, nánar til­tekið 16. júní það ár, fór fram aflandskrón­u­út­boð þar sem Seðla­bank­inn bauð aflandskrónu­eig­endum að borga 190 krónur fyrir hverja evru. Skráð gegni íslensku krón­unnar var þá 138,5 krónur gagn­vart evru. Ef til­boð­inu yrði ekki tekið átti að setja aflandskrónur við­kom­andi inn á vaxta­lausa reikn­inga inni í Seðla­bank­anum og hleypa þeim síð­ast allra út úr höft­um.

Auglýsing

Eig­endur um 200 millj­arða aflandskróna höfn­uðu samt sem áður til­boð­inu. Það reynd­ist mjög skyn­sam­leg ákvörðun í ljósi þess að krónan hefur styrkst gríð­ar­lega síðan þá og þeir allir náð í mik­inn geng­is­hagnað vegna þess.

Til við­bótar hefur Seðla­bank­inn gert þeim mun betra til­boð en áður, eða að greiða 137,5 krónur fyrir hverja evru. Ávinn­ingur þeirra, í evrum talið, er um 38 pró­sent. Þ.e. þeir fá um 38 pró­sent fleiri evrur fyrir krón­urnar sínar en þeir hefðu fengið ef sjóð­irnir hefðu tekið til­boði Seðla­banka Íslands í fyrra­sum­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None