Gunnar Smári sagður á útleið úr Fréttatímanum

Fréttablaðið greinir frá því að von sé á nýjum fjárfestum að Fréttatímanum. Samhliða mun Gunnar Smári Egilsson, sem hefur ritstýrt blaðinu í rúmt ár, hverfa frá.

Þóra Tómasdóttir og Gunnar Smári Egilsson hafa ritstýrt Fréttatímanum frá því í byrjun árs 2016.
Þóra Tómasdóttir og Gunnar Smári Egilsson hafa ritstýrt Fréttatímanum frá því í byrjun árs 2016.
Auglýsing

Frétta­blaðið greinir frá því á for­síðu í dag að nýir aðilar séu á leið inn í hlut­hafa­hóp Frétta­tím­ans, frí­blaðs sem kemur sem stendur út tvisvar í viku. Þar segir að Gunnar Smári Egils­son, sem er stærsti ein­staki eig­andi útgáfu­fé­lags Frétta­tím­ans og annar rit­stjóra blaðs­ins muni sam­hliða hverfa frá og hætta öllum afskiptum af blað­in­u. 

Starfs­manna­fundur var hald­inn í gær­morgun á Frétta­tím­anum þar sem farið var yfir stöðu mála. Hluti starfs­fólks hefur ekki fengið greidd laun þrátt fyrir að í dag sé 6. apr­íl.

Gunnar Smári greindi sjálfur frá því í stöðu­upp­færslu á Face­book um miðjan febr­úar að end­ur­skipu­lagn­ing á rekstri Frétta­tím­ans stæði yfir og að fram­tíð hans væri óljós. Hann hafði þá nýverið sett í loftið til­raun til að breyta var­an­lega grunni Frétta­­tím­ans, með því að efna til stofn­unar vett­vangs sem ber nafnið Frjáls fjöl­mið­l­un. Þeir sem ákváðu að ger­­ast stofn­­fé­lagar að vett­vangnum var boðið að greiða fyrir rekstr­­ar­grund­­völl Frétta­­tím­ans.

Auglýsing

Nýir eig­endur keyptu allt hlutafé í móð­­ur­­fé­lagi Frétta­­tím­ans í nóv­­em­ber 2015. Gunnar Smári leiddi þann hóp en með voru fjár­­­­­fest­­­arnir Árni Hauks­­­son, Hall­­­björn Karls­­­son og Sig­­­urður Gísli Pálma­­­son. Auk þess var Vald­i­mar Birg­is­­son áfram í eig­enda­hópn­­um. Til­­kynnt var í jan­úar að Árni og Hall­­björn hefðu selt sinn hlut í útgáfu­­fé­lag­inu til ann­­arra hlut­hafa. Eftir við­­skiptin voru hlut­haf­­arnir þrír: þeir Gunnar Smári, Sig­­urður Gísli og Vald­i­m­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None