Dæmdar sekar fyrir að reyna að fjárkúga Sigmund Davíð

Systurnar Hlín Einarsdóttir og Malín Brand dæmdar í tólf mánaða fangelsi fyrir fjárkúgun og tilraun til fjárkúgunar. Hluti dómsins er skilorðsbundinn.

sigmundur_malin_hlin.jpg
Auglýsing

Syst­urnar Hlín Ein­ars­dóttir og Malín Brand hafa verið dæmdar í 12 mán­aða fang­elsi fyrir fjár­kúgun og til­raun til fjár­kúg­un­ar. Hluti refs­ingar er skil­orðs­bund­inn. Þær voru meðal ann­ars dæmdar fyrir að reyna að kúga fé út úr Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Frá þessu er greint á mbl.­is.

Syst­urnar voru hand­teknar í byrjun júní 2015 eftir að greint hafði verið frá því að þær hefðu reynt að kúga fé út úr Sig­­mundi Davíð Gunn­laugs­­syni, þáver­andi for­­sæt­is­ráð­herra.

Sam­­kvæmt reifara­­kenndri frá­­­sögn fjöl­miðla áttu þær að hafa sent hand­­skrifað bréf heim til Sig­­mundar Dav­­íðs þar sem þess var kraf­ist að hann greiddi þeim um átta millj­­ónir króna. Ann­­ars myndu upp­­lýs­ingar sem áttu að vera við­­kvæmar fyrir hann að verða gerðar opin­ber­­ar.

Auglýsing

Málið var strax til­­kynnt til lög­­­reglu sem réðst í umfangs­­miklar aðgerðir sem leiddu til þess að syst­­urnar voru hand­­teknar í Hafn­­ar­­firði, sunnan Valla­hverf­is, á föst­u­dag. Í fjár­­­kúg­un­­ar­bréf­inu stóð að for­­sæt­is­ráð­herra ætti að skilja pen­ing­ana sem þær vildu fá á þeim stað.

Í til­­kynn­ingu frá lög­­regl­unni á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu kom fram að þær hefðu báðar játað verkn­að­inn við yfir­­heyrslur og þeim sleppt að þeim lokn­­um. Syst­­urnar geta átt yfir höfði sér allt að sex ára fang­elsi fyrir fjár­­­kúg­un­ina sem þær hafa játað á sig. Rann­­sókn máls­ins er nú lok­ið, um fimm mán­uðum eftir að það kom upp.  

DV greindi frá því í jún­­í­­byrjun 2015 að bréfið frá Hlín og Malín hafi haf­ist á blíðum nótum en fljót­­lega hafi til­­­gangur þess komið í ljós. Sig­­mundi Davíð og fjöl­­skyldu hans hafi verið veru­­lega brugðið þegar hand­­skrifað bréf með meintri fjár­­­kúgun barst á heim­ili þeirra. Í frá­­­sögn DV sagði að í bréf­inu hafi verið farið fram á ákveðna upp­­hæð auk þess sem nákvæm lýs­ing var á því hvar ætti að afhenda fjár­­mun­ina. Sá staður var við Krís­u­vík­­­ur­­veg, sunnan Valla­hverfis í Hafn­­ar­­firði. Sam­­kvæmt DV var lögð þung áhersla það í lok bréfs­ins á að afleið­ing­­arnar yrðu alvar­­legar ef að haft yrði sam­­band við lög­­­reglu.

Annar maður kærði þær síðar fyrir fjár­kúgun og hér­aðs­dómur dæmdi þær sekar í því máli í dag. 

Hægt er að lesa ítar­lega skýr­ingu um þessa reyfara­kenndu frá­sögn hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None