Samningur við Háholt augljóslega ekki góð nýting á fjármunum

Félags- og jafnréttismálaráðherra tekur undir gagnrýni á að samningur við Háholt, sem kostaði allt að 500 milljónir króna, hafi ekki verið góð nýting á almannafé. Einn ungur fangi var vistaður á heimilinu á samningstímanum.

7DM_0282_raw_2085.JPG
Auglýsing

Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, segir að það sé aug­ljóst að þjón­ustu­samn­ingur sem gerður var við með­ferð­ar­heim­ilið Háholt árið 2014 hafi ekki verið góð nýt­ing á fjár­mun­um. Samn­ing­ur­inn kost­aði rík­is­sjóð milli 450-500 millj­ónir króna og var gerður í tíð fyr­ir­renn­ara Þor­steins í emb­ætti, Eyglóar Harð­ar­dótt­ur.

Þjón­ust­u­­samn­ing­­ur­inn var rök­studdur með því að finna þyrfti stað til að vista fanga undir aldri sem dæmdir höfðu verið til óskil­orðs­bund­innar refs­ing­­ar. Frá því að samn­ing­­ur­inn var gerður hefur einn slíkur fangi verið vistaður í Háholti, sem er stað­­sett í Skaga­­firði. Allt í allt hafa að jafn­­aði 1-3 ein­stak­l­ingar verið vistaði í Háholti.

Rekstr­­ar­að­ilar Háholts sendu því nýverið vel­­ferð­­ar­ráðu­­neyt­inu bréf þar sem þeir ósk­uðu ekki eftir því að end­­ur­nýja þjón­ust­u­­samn­ing­inn sem gerður var í tíð síð­­­ustu rík­­is­­stjórn­­­ar, og rennur út 1. sept­­em­ber næst­kom­andi. Rekstur heim­il­is­ins hættir í lok júní.

Nýtt með­ferð­ar­heim­ili verður byggt

Bragi Guð­brands­son, for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, sagði við Kjarn­ann í gær að að gerð þjón­ust­u­­samn­ings­ins hafi ekki verið góð aðgerð. „Þetta er skelfi­­leg með­­­ferð á opin­beru fé,“ sagði Bragi aðspurður um hvort það væri rétt­læt­an­­legt að eyða nálægt hálfum millj­­arði króna í þjón­­ustu fyrir þá fáu ein­stak­l­inga sem vistaðir voru á Háholti.

Auglýsing

Þor­steinn seg­ist sam­mála Braga. Það sé aug­ljóst að samn­ing­ur­inn hafi ekki verið góð nýt­ing á fjár­mun­um. „Þetta er úrræði sem hefur verið mjög lítið nýtt á und­an­förnum árum. Það var bara vistaður einn ungur fangi þarna í nokkra mán­uði. Svo er aug­ljóst að dregið hefur úr eft­ir­spurn eftir svona með­ferð­ar­úr­ræðum og mun meiri áhersla er á að sinna þeim sem þurfa á slíkum að halda í nærum­hverf­i.“

Þor­steinn segir að ákvörð­unin um að gera þjón­ustu­samn­ing­inn við Háholt hafi á sínum tíma verið umdeild. Ráðu­neytið hafi þó ekki lagt í neina vinnu við að greina af hverju ákvörðun um gerð hans hafi verið tekin á sínum tíma. „Það liggur nú fyrir mat Barna­vernd­ar­stofu að þetta úrræði sé barn síns tíma. Búið er að taka ákvörðun um að byggja nýja með­ferð­ar­stofnun nær höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Því verk­efni hefur þegar verið tryggt fjár­heim­ild til upp­bygg­ingar og rekstr­ar­fé. Fram­kvæmda­sýsla rík­is­ins vildi kanna hvort mögu­leiki væri á að fá notað hús­næði undir þessa starf­semi áður en ráð­ist yrði í bygg­ingu á nýju. Því var aug­lýst eftir not­uðu hús­næði en ekk­ert fannst. Það verður því byggt nýtt hús­næði undir starf­sem­ina. Næstu skref eru að hanna það hús­næði og finna hent­uga stað­setn­ing­u.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None